Þú ert að skoða færslur flokkaðar undir Viðburðir:

Lífsmörk er lítið hefti um jákvæðar og uppbyggjandi aðgerðir í kreppunni. Hugmyndirnar byggja fyrst og fremst á anarkískri hugmyndafræði, enda anarkistar sem standa að blaðinu. Fyrsta eintakið kom út Laugardaginn 15. Nóvember og var dreift á mótmælunum á Austurvelli, þar sem það beinlínis hvarf úr höndum þeirra sem dreifðu því. Stefnt er að útkomu annarst eintaks Lífsmarka næsta Laugardag, 22. Nóvember.

En þangað til… náið ykkur í fyrsta eintakið með því að smella hér.

Nýjasta eintakið af Earth First! Action Update - yfirlits yfir beinar aðgerðir og mótmæli gegn eyðileggingu jarðarinnar er komið út og má hala niður hér. Yfirlitið kemur út á þriggja mánaða fresti og segir það nýjasta frá helstu aðgerðum Ágúst, September og Október, aðallega í Bretlandi en einnig alþjóðlega.

Dagblaðið ‘NEI’ er nýtt dagblað og kemur út oft oft og það er verður pési að lesa! Þú getur nálgast NEI-ið á þessari slóð hér:

www.this.is/nei

Aftaka fagnar greinandi skrifum en fréttamiðlar landsins eru uppfullir af kreppu-hinu og kreppu-þessu án þess að skýra ástandið né þá heldur reyna þeir að segja satt.

En þesskonar blaður er ekki stundað í dagblaðinu ‘NEI’ og klappar Aftaka fyrir því!

Alla laugardaga kl. 14:00 stendur hópur fólks að aðgerðinni Food Not Bombs á Lækjartorgi. Hér má fræðast meira um Food Not Bombs; hugmyndina og tilganginn bakvið aðgerðina.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Login