Hér sérðu bara færslur með tagginu afhjúpun:
Tögg:

Nei, við Íslendingar erum ekki hryðjuverkamenn, Hr. Brown, HA?

Við erum ekki í búrku eða með höfuðföt og hvorki með íslamista skegg né dökk og brún á brá, HA! Þetta er misskilningur Hr. Brown, þú ert nú eitthvað að horfa í vittlausa átt, HA? Þú veist, Ísland, það er í NORÐRI, ekki í suðri eða austri!! Hr. Brown þú ert nú alveg, HA, já þetta var næstum því fyndið HA…? Við erum Íslendingar, þú veist BJÖRK, SIGURRÓS…………þessir klikkuðu sem allt geta og allir elska!

Tögg:

Aftöku barst eftirfarandi boðskort:

Boðskort

Í dag birti vefsíða Morgunblaðsins bréf sem sagt var að væri fá Bretanum Adrian Brain, sem heimsótt hefur Ísland og er víst ákaflega óánægður með framkomu Gordons Brown gagnvart Íslandi. Í opnu bréfi sínu til íslensku þjóðarinnar biðst hann afsökunar. Takið ykkur örstutt hlé til að æla.

Tögg:

Í tilefni 100 ára ammæli Steins Steinars, skáldakalls, rifjaði Aftaka upp fræg orð eftir kauða:

Í bubba-draumi

Kæri Bubbi; ekki eru allir með þorska í blóðinu en sumir eru með hland og kransakökustíflu í hugsjónunum!

kjörkassinn

Hvernig tókst þessum 9,4% að kjósa nei? Það er ótrúlegt miðavið kjörseðilinn!

Þessar skoðanakannanir segja jafn mikið um skoðanir landans á málefnunum líðandi stundar og skolpkerfi Reykjvíkur segir um Halldór Laxnes.

í lýðræðisríkinu Íslandi eru allir eru hvattir til að láta sína skoðun í ljós og hafa þar með áhrif á framgang mála.

lýðræðið

Kæri kjósandi: Láttu þína rödd hljóma í drullupyttinum!

Því þín skoðun skiptir máli. Hana má líka kaupa með pulsu og kóki!

Þessi birtingarmynd lýðræðisins fannst á vefsíðu vísis.is í dag.

Tögg:

Aftaka má til með að endurbirta skrif Elísabetar Jökulsdóttur, í Mogganum nú fyrr í vikunni:

Í Kastljósi sl. föstudagskvöld var hægt að sjá og heyra Ómar R. Valdimarsson mæla með Bjallavirkjun. Ómar sagði eitthvað á það leið að það væri ekki hægt að líta á virkjunina öðruvísi en atvinnuskapandi ef menn væru… svangir. Það kom andartaksþögn áður en hann laumaði þessu orði út úr sér. Þess vegna langar mig nú með þessu litla bréfi að bjóða Ómari R. Valdimarssyni í mat. Þar getur hann fengið að éta þessi orð ofan í sig.

Tögg:

Í sumar var heljarinnar skóflustungutúr farinn í kringum landið á nokkrum dögum.

íslandskort

Alls voru sex skóflustungur teknar víðsvegar á landinu fyrir ýmiskonar uppbyggjandi og atvinnuskapandi starfsemi. Þetta er liður ríkisstjórnar Íslands í því að finna lausnir á atvinnumálum sem og byggðadreifingu og fólksflótta frá landsbyggðinni. Við Íslendingar búum svo vel að eiga endurnýtanlega græna orku sem getur knúið hjól atvinnulífsins enn frekar, það er því skylda okkar að minnka losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum og stuðla einnig að öryggi og frið í hinum vestræna heimi. Það felst í alþjóðlegri framleiðni í þjóðlegu umhverfi, þannig öxlum við ábyrgð í hinum stóra heimi.

Tögg:

Þú vaknar, ferð á fætur, kanski í sturtu, klæðir þig og snyrtir, borðar morgunmatinn og kíkir í blaðið. Svo opnarðu útidyrnar.

góðan dag, ég er ruslið þitt!

“Góðan dag, ég er ruslið þitt!”

Á móti þér tekur semsagt ruslið þitt frá deginum áður,,,,, vandlega staflað upp í einhverskonar pálmatré! Og þarna stendurðu augnlitis til augnlitis við umbúðirnar tómu. Kanski eru þær í skrumskælni sinni hlægilegar, en samt; hvernig í andskotanum tókst þeim að skríða upp úr tunnuni af sjálfsdáðum og hvern fjandann vilja þær þér?

Tögg:

Greinin Skítt með kapítalista og öll þeirra kerfi sem birtist fyrir nokkrum dögum hér á Aftöku vakti upp viðbrögð hjá nokkrum gömlum og ennþá reiðum pönkurum og líka hjá Sigmari nokkrum. Hann komst að athyglisverðum niðurstöðum sem eru að einhverju leyti réttar. Þessi grein hér er um list og byltingu og skoðar líka viðbrögðin við fyrrnefndri grein. Til þess að lesa þetta þarftu eiginlega að lesa bæði Skítt-með-kapítalista greinina og bloggið hans Sigmars sem finna má fyrir neðan greinina.listamanns rass

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Login