English 
Hér sérðu bara færslur með tagginu afhjúpun:
Tögg:

Á Sódóma Reykjavík, nýopnuðum bar og tónleikastað í miðborginni, pissar fólk á auðmenn. Myndum af útrásarvíkingunum – strákunum okkar – hefur verið komið fyrir í pissuskálum á karlaklósettum staðarins og hlandblotna í hvert sinn sem gestir hafa drukkið blöðrufylli af bjór.

Þetta er svo sem gott og blessað; fyndið á fylleríinu að pissa á fíflfeðgana frá Baugi og Björgúlfsskrattana sem lugu og léku sér með peninga fólks.

Tögg:

Hannes Hólmsteinn EFTIRLÝSTUR

Upplestur úr verkum Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar ekki leyfður á Háskólatorgi

Í gær, miðvikudaginn 11. mars, stóðu nokkrir nemendur við Háskóla Íslands og meðlimir í félagskap byltingarsinnaðra háskólanema Öskra, fyrir upplestri úr verkum Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar. Tilgangur upplestursins var að vekja athygli á þeim hugmyndum sem birtast í ritum prófessorsins. Eða eins og segir í yfirlýsingu aðgerðarinnar:

Lögreglan fer nú á milli félagsmiðstöðva og treður áróðri yfirvalda ofan í börn. Málið snýst um mótmæli, piparúða, ofbeldi lögreglunnar og hina ,,stórhættulegu” anarkista.

January 20th, 2009

Í kjölfar mótmælaaðgerðanna sem felldu ríkisstjórnina nú í Janúar hefur lögreglan átt undir högg að sækja. Ofbeldi lögreglunnar gegn mótmælendum hefur verið harðlega gagnrýnt og koma þær raddir víðs vegar að úr þjóðfélaginu. Til að mynda lenti fjölmargt fjölmiðlafólk í piparúða-árásum lögreglunnar fyrir það eitt að vera viðstatt og taka myndir af því sem átti sér stað. Blaðamannafélagið vinnur nú í þeim málum. Fjölmargar myndir hafa verið birtar máli gagnrýnenda til sönnunar og tekin hafa verið viðtöl við fólk sem lenti hvað harðast í löggunni.

Tögg:

EKKI BYLTING EINNAR HUGMYNDAFRÆÐI

Nú reynir hver að verða fyrstur að maka á sig róttækninni og kalla sig byltingarmann í fjölmiðlum. Ákveðnir framapotarar eru búnir að troða byltingunni inn á ferilskrána, sumir þeirra voru jafnvel hirðskáld auðvaldsins fyrir ,,kreppu” en þykjast núna voða róttækir og stæra sig af því að hafa hrópað “Vanhæf ríkisstjórn!” á byltingardaginn – segjast jafnvel alltaf hafa verið byltingarmenn í hjarta sér.

Jólasveinninn sem er góður, hatar kók og kapítalisma hefur nú tekið upp á því að gefa ráðhórum í skóinn. Það hefur gengið misjafnlega, stundum brosa raðhórurnar beiglað en þiggja þó kartöfluna á meðan aðrir líkt og Björn Bjarnason hafa gert allt til að flýja samvisku sína með því að neita að hitta jólasveininn.

Pottaskefill og Þorgerður menntamálaráðhóra

Kók-lestin fór um bæinn í gær.

kók er kúkur kapítalsins

Í ljósadýrð hennar var það gert ljóst að 3 einkennisklæddir hópar eru málaliðar hjá viðbjóðs-stórfyrirtækinu Kóka-kóla: Hjálparsveitarmenn sem gegnu með lestinni henni til varnar, lögregluþrælar sem keyrðu undan lestinni í sömu erindagjörðum og jólasveinar sem keyrðu lestina en jólasveinninn, í þeirri mynd sem við þekkjum best í dag, er að einhverju leiti er skapaður af kók til að heilla börn og lokka þau til að drekka sykur-sýru-drulluna kók.

Tögg: ,

Í gær var mótmælt; hópur manna þagði á Austurvelli, nokkrir úr þeim hópi brenndu feðraveldið á táknrænan hátt, á Akureyri var drukkið löggu-kakó, á Lækjartorgi borðaði fólk mat í boði offramleiðslunnar á meðan annar hópur þar skammt frá framdi gjörning:

 

skuldsettu krakkarnir

Hópurinn dreyfði einnig blaðsneppli til vegfarenda, á honum stóð:

Að vera Kók megin í lífinu kostar 11,2 milljónir

Tögg:

Tarrrratttataaatataaaammmmmm Aftaka kynnir nýtt horn á síðunni;

Pólitíska-Prakkaraskaps horn Aftöku!

Þetta er fyrsta prakkarastrikið í þessu skemmtilega horni:

Jakob Frímann og borgarstjórnin hóf í sumar zero-tolerance stefnu gagnvart veggjakroti. Eitt af þeirra fyrstu verkum var að senda húseigendum bréf þar sem þeim var hótað að ef þeir snyrtu ekki hús sín og garða í samræmi við kröfur þeirra félaga þá yrði gripið til dagsekta. Margt fólk var ósátt og reitt og þessi fasíska stefna var gagnrýnd en að endingu var látið undan kröfum þeirra félaga. 

Tögg:

Nei, við Íslendingar erum ekki hryðjuverkamenn, Hr. Brown, HA?

Við erum ekki í búrku eða með höfuðföt og hvorki með íslamista skegg né dökk og brún á brá, HA! Þetta er misskilningur Hr. Brown, þú ert nú eitthvað að horfa í vittlausa átt, HA? Þú veist, Ísland, það er í NORÐRI, ekki í suðri eða austri!! Hr. Brown þú ert nú alveg, HA, já þetta var næstum því fyndið HA…? Við erum Íslendingar, þú veist BJÖRK, SIGURRÓS…………þessir klikkuðu sem allt geta og allir elska!

Tögg:

Aftöku barst eftirfarandi boðskort:

Boðskort

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in