Hér sérðu bara færslur með tagginu aktívismi:

 Girðing rifin

Laugardaginn síðastliðna, þann 25. Október, fór fram stærðarinnar aðgerð og mótmæli í Danmörku. Yfirskrift dagsins var Luk Lejren! eða Lokum Búðunum! og var tilgangurinn að mótmæla meðferð á hælisleitendum í Danmörku og loka búðunum (lesist: fangelsinu) sem þeir búa í. Búðirnar, sem eins og fangelsi eru girtar af með gaddavír, eru staddar í smábænum Sandholm, um 25 km. frá Kaupmannahöfn. Skilaboð þeirra sem stóðu að aðgerðinni voru skýr og í alþjóðlegu ákalli fyrir aðgerðina sagði m.a. þetta:

Matur Ekki EinkaþoturÍ gær, Laugardaginn 26. Apríl, var hópurinn Matur Ekki Einkaþotur með sína fyrstu uppákomu í Reykjavík. MEE er byggður á hugmyndafræði alþjóðlegu hreyfingarinnar Food Not Bombs sem starfar út um allan heim. Íslenski hópurinn ákvað að nefna sig Matur Ekki Einkaþotur í kjölfar nýrra flutningsleiða íslenskra ráðamanna en nafnið getur allt eins breyst í hvert sinn í samræmi við það sem helst ber á góma hér á landi. Fyrst og fremst á nafnið að endurspegla heimskulega forgangsröðun valdhafa.

Í fyrradag, 15.apr. gerði hópur sem kallar sig ‘enginn er ólöglegur’ eða á frummálinu ‘Ingen människa är illegal’ tilraun til að stöðva brottvísun hins 23 ára Jamil Mohammed Burhan frá Svíþjóð. Mótmælendurnir, eða aðgerðarsinnarnir, reyndu að stöðva flugtak vélarinnar sem átti að flytja Jamil úr landi. Níu manns voru handteknir, þar af sex við að klifra yfir flugvallargirðinguna en hinir þrír eftir kómískan eltingaleik á flugbrautinni þar sem jeppar voru notaðir til að ‘hlaupa’ aktívistana uppi. Jamil Mohammed Burhan er fæddur og uppalinn í Sádi Arabíu en foreldrar hans, sem fæddir eru í Erítrea, og öll hans fjölskylda búa þar enn. Það er ekki vitað hvaða, ef nokkurn, ríkisborgararétt hann hefur en hann hefur ekki rétt á að snúa aftur til Sádi Arabíu. Hann kom fyrst til Svíþjóðar í ágúst 2002 og sótti um hæli. Umsókn hans var hafnað í desember 2003, áfrýjun þess úrskurðar var svo hafnað 27.okt. 2004 á þeirri forsendu að hann hefði aldrei komið til Erítrea og þyrfti þess vegna ekki að óttast stjórnvöld þar. UN High Commissioner for Refugees (UNHCR) mælir gegn að nokkur ríkisstjórn sendi hælisleitendur frá Erítrea aftur til baka þar sem þeir eiga hættu á að vera haldið incommunicado og pyntaðir þar sem hælisumsóknir eru álitnar landráð. Í besta falli verður hann settur í lífstíðar herþjónustu- versta falli pyntaður til dauða. Amnesty hefur einnig lagst harðlega gegn brottvísun Burhans og haldið uppi herferð til að fá ákvörðun sænska ríkisins breytt. Svíþjóð er eina ríki Evrópu sem sendir fólk gegn vilja sínum til Erítrea þar sem þúsundum manna er haldið í einangrun um ókomna tíð án ákæru og réttarhalda og líða reglulegar pyntingar. Við fyrstu tilraun til að koma honum úr landi streittist hann svo á móti að flugstjóri vélarinnar neitaði að taka á loft. Í annað skipti tókst að koma honum alla leið niður til Erítrea en þar var honum neitað um landvistaleyfi svo þurfti að fljúga hann aftur inn til Svíþjóðar og nú mánuði seinna, eftir að gengið hefur verið frá allri pappírs vinnu er hann aftur á leið til hins stríðshrjáða einræðisríkis.

Fyrr í vikunni voru fánar hengdir á flaggstangir danska sendiráðsins í Reykjavík og setningin “We will never forget” skrifuð á það. Samkvæmt þessari frétt voru á ferðinni stuðningsmenn Ungdómshússisns og birtist þar fréttatilkynning sem hljóðar svona:
Danska sendiráðiðVið skrifuðum “we will never forget” á danska sendiráðið á Íslandi í tilefni þess að eitt ár er liðið frá niðurrifi Ungdomshússins í Kaupmannahöfn. Hauskúpan hefur verið tákn Ungdómshússins og talan 69 einnig en hún var rituð á annan fánann. Við munum aldrei gleyma og við gefumst ekki upp.

Sl. Laugardag, þann 1. mars, var eitt ár liðið síðan notendur Ungdómshússins í Kaupmannahöfn voru bornir út af lögreglunni og fjórum dögum seinna var húsið rifið, en í nokkra mánuði höfðu dönsk yfirvöld gefið í skyn að útburðurinn myndi eiga sér stað. 

Í desember 2006 leit úr fyrir að svo myndi gerast og fylktu unnendur hússins liði til Kaupmannahafnar til að standa vörð um þessa mikilvægu miðstöð anarkisma, pönks, hústöku og annarar and-kapítalískrar menningar. Miklar óeirðir áttu sér stað sem fengu heimsathygli - Undómshús-verjar börðust af fullum krafti svo ekkert varð úr áætlun yfivalda.

Eftir að hafa lesið greinina skoðunakúgun fannst mér upplagt ad setja inn þetta myndband.

Það sýnir frá götupartýi Saving Iceland, Rave Against the Machine, 14. júlí 2007.

Í viðtali við Fréttablaðið í dag talaði tónlistarmaðurinn Þórir eða My Summer As a Salvation Soldier um nýja plötu sína Activism.

Þórir

Titill plötunnar kemur til af umræðunni um pólítíska aktívista hér á landi og þá sérstaklega um Saving Iceland hreyfinguna, en Þórir segist taka neikvæða og niðrandi umræðu um Saving Iceland mjög nærri sér. Hann er mikill stuðningsmaður hreyfingarinnar og hefur bæði tekið þátt í aðgerðum hennar sem og hjálpað til við fjáröflun. Hann lýsir einnig yfir stuðningi við pólítíska aktívista alla jafna.

Tögg: , ,

AðgerðakanínanÚt er komin bókin Beinar Aðgerðir og Borgaraleg Óhlýðni á vegum Andspyrnu útgáfu.

Andspyrna við valdbeitingu og óréttlæti er náttúrulegt og eðlilegt ferli í samfélögum manna. Því erum við ekki að berjast fyrir náttúruna þegar við myndum andspyrnuhópa, heldur erum við náttúran að svara fyrir sig. Við erum heldur ekki beint að berjast fyrir betra samfélagi þegar við myndum hópa sem verja mannréttindi, heldur erum við samfélag að verja sig.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Login