Hér sérðu bara færslur með tagginu andspyrna:
Tögg:

Ef það að mótmæla óréttlætinu og krefjast réttlætis gerir mann að skríl, þá er það gleðiefni að vera SKRÍLL!Frá breiðfylkingunni!

Þessi skilaboð voru í horninu:

ps. hvað?Með þessu Ps-i sínu er “breiðfylkingin” að hlýða lægstvirtri ríkisstjórninni á sama tíma og þessi “breiðfylking” krefst afsagnar ríkisstjórnarinnar! Verum stolt af því að láta ekki bjóða okkur meiri skít! Verum þessi SKRÍLL sem ríkisstjórnin og aðrir valdhafar hræðast! Mætum á Austurvöll sem SKRÍLLINN sem lætur ekki vaða yfir sig!

Þar er full ástæða til þess að taka ofan fyrir ákveðnu fólki hér á landi vegna tveggja atburða sem áttu sér stað í dag. Það má með sanni segja að almenningi, eða að minnsta kosti þessum hluta almennings, sé að fara fram þegar kemur að andpsyrnuaðgerðum gegn ríki og auðvaldi. Því ber að fagna.

Leðurfákar skipta sér af og krefjast hlýðni

Alþingismenn lokaðir úti

Tögg:

 ANDSPYRNA nr. 1

1.    NÓVEMBER 2008

Sá veruleiki sem Íslendingar þekktu er nú hruninn. Fólk hefur verið férúgið og yfirvofandi er atvinnuleysi, ofur-vextir, einangrun, skulda-þrældómur og skortur.

Sumir hrópa að kapítalisminn, ríkjandi hugmyndafræði síðustu áratuga, sé fallinn. Það er  hins vegar langt í frá. Þvert á móti er hann að þróast og nú eru að skapast bestu mögulegu aðstæður fyrir algjörlega hömlulausan kapítalisma. Og kanski var það alltaf markmið hans að koma á því ástandi sem hér ríkir nú, einfaldlega því þannig færist fjármagnið á enn færri hendur.

Brennum bankana!

Í gær var enn á ný mótmælt vegna efnahagsástandsins hér á landi. Í þetta skiptið fóru fram tvær athafnir: tónleikar Harðar Torfasonar á Austurvelli og fjölskylduboð Jóns Baldvins og fjölskyldu við ráðherrabústaðinn á Tjarnargötu.

Fjölmiðlar hafa gert mikið úr því að mótmælahreyfingin svokallaða hafi klofnað vegna einhverra ósátta og Hörður Torfason virtist vera á sama máli - líklegast fúll yfir dræmri mætingu á tónleika sína. Eflaust eru margir sammála fjölmiðlum og Herði og finnst mikilvægast að nú ,,standi þjóðin saman.” En svekkjandi, málið er ekki svo einfallt. Það er ekkert óeðlilegt við að mismunandi hópar fólks standi upp á mismunandi forsendum og beiti mismunandi aðferðum. Ástæðan er einföld:

Á blaðamannafundi í dag bað Geir H. Haarde, forsætisráðhóra, íslensku þjóðina að halda ró sinni og Björgvin Sigurðsson, fjármálaráðhóra, hrósaði þjóðinni fyrir rólyndi sitt. Aftaka þvertekur fyrir þessa beiðni og hvetur til hins öfuga. Það er engin ástæða til að vera rólegur.

Sá ósómalýður sem hvað mest hefur tekið þátt í bakstri góðæris-rjómatertunnar á ekkert skilið nein rólegheit. Það er heljarinnar hópur af mismennskum kvikindum sem hafa kallað eftir vandræðum, látum og heljarinnar andspyrnu. Rólegheitin munu aðeins ýta undir meiri spillingu og gefa þeim sem eiga vesenið skilið, tíma og rúm til að búa sig undir það. Það viljum við ekki!

Tögg:

Vefur Morgunblaðsins birti í dag frétt með titlinum ,,Óeirðir í Malmö”, þar sem auk myndbands frá Reauters fréttastofunni kom þetta fram:

,,Grímuklæddir mótmælendur létu til skarar skríða gegn óeirðalögreglu á götum Malmö í Svíþjóð í nótt. Þar í borg stendur nú Evrópska samfélagsráðstefnan, sem hófst á miðvikudaginn. Hafa mótmælendur haft sig í frammi á hverjum degi, en fram að þessu hafa aðgerðir þeirra verið friðsamlegar.”

Snemma morguns þann þriðja Júlí sl. hlupu tveir menn inn á flugbraut Keflavíkurflugvallar og fyrir flugvél sem var við það að hefja flugtak. Innanborðs var Kenýabúinn Paul Ramses sem hafði sótt um pólítískt hæli hér á landi vegna hættu á því að vera drepinn í heimalandi sínu. Íslensk stjórnvöld og útlendingastofnun ákváðu að hundsa málið, gefa skít í mannslíf og senda Paul til Ítalíu - einungis vegna þess að þau höfðu tæknilega séð lagaleg réttindi til þess. Þrátt fyrir töfina vegna flugbrautahlauparanna tók flugvélin á endanum á loft og sendi Paul í hendur ítalskra stjórnvalda. Þar mátti hann dúsa tvo mánuði í fangabúðum; aðskilinn frá konu sinni, nýfæddu barni og umheiminum.

Tögg:

jihad1_388.jpgAftaka átti áhugavert samtal við mann nú í dag. Hann var tættur og veðurbarinn að sjá, illúðlegur til augnanna og bullandi af heilagri reiði. Við stóðum á mótum Bankastrætis og Laugavegar við skilti af komandi borgarskipulagi. Hann stappaði niður fótum, barði í skiltið og tilkynnti djúpum rómi og með hnefa á lofti að nú væri aldeilis nóg komið, þetta hálfkák og fjölmiðlarúnk hefði ekki skilað nokkrum árangri.

,,Eftir sem áður er nafnleysi ekki liðið. Ég áskil mér allan rétt til að fjarlægja óviðeigandi komment. Lokað er án hiks á þá aðila sem fara yfir mörkin hér í kommentum […] Athugasemdir birtast eftir að ég staðfesti þær.”

- Stefán Friðrik Stefánsson, atvinnu-bloggari

Allir saman“Á morgun verður gaman / þá komum við öll saman / við erum góðir vinir / og allir eru með.
Við sprengjum börn og skjótum / og rústum heimsins fljótum / já alþjóðakapítalsimi er fallegt blómabeð.”

G8, hin gáfuðu og glöðu átta, hittast á morgun. Merkisfólkið Georg W. Bush, Gordon Brown, Angela Merkel, Nicolas Sarkozy, Stephen Harper, Silvio Berlusconi, Yasuo Fukuda og Dmitry Medvedev, koma saman, ræða málin og fyrst og fremst leysa þau vandamál sem steðja að heiminum. Veislan fer að þessu sinni fram í Japan og matseðillinn inniheldur forréttinn Afríka; aðalréttinn Loftslagsbreytingar og sjálfbær orkunýting; eftirréttinn Efnahagsástand heimsins; og líkjörinn Hryðjuverkaógnin - Namminamm!

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Login