Nýr Andspyrnuvefur (www.andspyrna.org) hefur litið dagsins ljós. Á Andspyrnuvefnum er að finna upplýsingar um útgáfustarfsemi Andspyrnu, bókasafnið (hægt er að leita í bókalista) og umfjallanir um bækur fyrir fríþenkjandi einstaklinga. Greinasafninu er skipt í inngang að anarkisma og sögu auk dálka um anarkistaviðhorf gagnvart samtímanum. Einnig verða útgáfur Andspyrnu settar inn smám saman í lestrarhæfu textaformi.
Í gærkvöldi var götupartí á Lækjartorgi. Vel yfir hundrað manns komu saman, kveiktu bál, settu tónlist í gang og skemmtu sér… þangað til lögreglan mætti á svæðið og slökkti eldinn. Þá var kveikt í öðru báli og skemmt sér… þangað til lögreglan mætti aftur og slökkti eldinn aftur, hirti hljómflutningstæki og handtók fólk. En samstaðan var mikil og atburðurinn var góð byrjun á áframhaldandi andófi.
Dabbi Djús ætlar ekki að yfirgefa hálfklárað verk sitt; að dunda sér að sökkva dárafleyinu.
Jóhanna, nýja forsætisráðhóran er búin að reka kallinn en hann ætlar hvergi. Ó, hvað það væri gaman að sjá víkingarsveitina hans Björns Bjarnarsonar bera út blóðhundinn gamla og ljóta en það gerist ALDREI, því lögguþrælarnir svíkja ekki eigin herra.
…hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Aftaka, hún á afmæli í dag. Já, Aftaka er hvorki meira né minna en eins árs í dag og svona byrjaði hún, með mynd sem á ekki síður við í dag en fyrir einu ári síðan:
Aftaka fæddist löngu fyrir kreppu og er stolt af því. Það þurfti ekki fall bankanna og eigin afhjúpun íslenskra stjórnmála til þess að hún kæmi í heiminn, sparkandi á undan sér og stæði uppi í hárinu á skítugum yfirvöldum. Nei, hún mætti til leiks og reif kjaft, óhlýðnaðist og boðaði anarkíska byltingu frá fyrsta degi.
Við erum búin að mótmæla, búin að MÆLA-Á-MÓTI, búin að segja allt málefnalegt sem þessu við kemur. En pakkið situr enn og þótt kosningar fari fram þá situr pakkið enn. Enda eru kosningar ENGIN lausn, því þá fáum við bara nýtt skítapakk sem getur sagt að ,,það hafi nú verið kosið” til að svínaríast í umboði ,,þjóðarinnar”.
NEI! Pakkið fær ekki frið. Ekki Samfylkingin, ekki Sjálfstæðisflokkurinn, ekki Frjálslyndi flokkurinn, ekki Framsókn, ekki Vinstri grænir, ekki neinn sem vill ota sínum tota og stjórnast með fólk.
Yfirlýsing frá Öskru – nýstofnaðri hreyfingu byltingarsinnaðra háskólanema.
Öskra er hreyfing byltingasinnaðra háskólanema sem neita að loka augunum fyrir misréttinu í þjóðfélaginu. Íslenskt samfélag byggist á óréttlátu valdakerfi þar sem kyn, stétt og þjóðerni ráða stöðu fólks og koma í veg fyrir raunverulegt jafnrétti. Slíkt ástand er óásættanlegt.
Við sniðgöngum hina hefðbundnu stúdentapólitík og beitum okkur af fullum krafti gegn því óréttlæti sem hefur fengið að ríkja í öllu samfélaginu. Það er ekki hægt að kaupa okkur með loforðum um hærri námslán, malbikuð bílastæði eða betri samlokugrill. Við krefjumst allsherjar breytinga
Á síðustu dögum hafa a.m.k. 680 manns verið drepnir í árásum Ísraelshers gegn íbúum Palestínu, þar af . Fyrr í vikunni var grænmetismarkaður á Gaza sprengdur í loft upp, 80 særðust alvarlega og 20 létust. Í gær voru 40 manns drepnir þegar Ísraelsher réðst gegn skóla á Gaza. Ástandið er vægast sagt skelfilegt.
Jólagjöf frá Aftöku:
,,Boðskapurinn breytist ekki” var titill forsíðugreinar Mbl.is í gær, aðfangadag. Þegar smellt er á fréttina tekur að hljóma tilgerðarlegur jólasöngur og myndband sýnir myndir sem eiga að minna okkur á jólin. Þar fyrir neðan birtist jólaræða prestskrípisins Jóns Helga Þórarinssonar úr Langholtskirkju.
Megin inntak þessarar ógeðslegu ræðu Jóns, er að þó mennirnir og tímarnir breytist, þá breytist boðskapur jólanna ekki. Og þessir há-heiðnu tyllidagar, sem kirkjunni tókst svo sannarlega að stela í slagtogi við Coca Cola, segir Jón að kunngjöri að ljós guðs skíni til okkar, lýsi upp líf okkar og vísi okkur á rétta braut.
Danska fréttablaðið Politiken greindi frá því í gær að 15 manns hafi verið dæmdir til fangelsisvistar vegna átakanna um Ungdómshúsið í Kaupmannahöfn, þann 1. mars 2007. 11 fengu eins árs og þriggja mánaða dóma, 3 fengu eins árs dóm og sá síðasti slapp með níu mánaða fangelsisvist, enda aðeins 16 ára gamall þegar hann var handtekinn.