Hann Björn litli Bjarnason deyr ekki ráðalaus, hann býst við að finna unga menn með valdníðslu í hjartanu, eftir niðurlægingu skólakerfisins og yfirvaldsins, til að uppfylla pervisna valdníðsludrauma sína! Það hlakkar í Birni litla B. þegar hann hugsar um rafstuðsbyssur og táragas. Hann nuddar kylfuna og skvettir úr honum yfir riot-porni frá öðrum valdníðingsríkjum!
En Björn:
Það er enginn memm þér, þú færð ekki fleira fólk til að kúga fyrir þig og þína, við erum öll búin að sjá í gegnum ykkur!
Smelltu HÉR til að líta augum á góðverk dagsins, þegar auglýsingaskilti úr skítaherferð Vodafone ‘Skítt með kerfið‘, var eyðilagt. Kapítalistinn Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone segist vona að þarna séu ekki á ferðinni samkeppnisaðilar… en þorir ekki að viðurkenna skítræfilshátt fyrirtækisins í tengslum við auglýsingarnar. Aftaka hefur þegar skrifað um þessa aumkunarverðu markaðssetningu hér.
Fleiri svona aðgerðir takk…
Hér er hins vegar auglýsingin aumkunarverða:
Anarkistarnir hjá Vodafone eiga heiðurinn að nýjum dálki hér á síðunni, sem Aftaka hefur ákveðið að kalla: Heimskupör kapítlistanna, gjöriðisvovel!
Nýjasta auglýsingaherferð Vodafone hér á landi heitir Skítt með kerfið og virðist eiga að ná til uppreisnarseggja samfélagsins, æj þúveist svona rebel-týpur í Che Guevera-bol.
Eftir að hafa fjallað mánaðarlega um barnaníð Glitnis kynnir Aftaka með litlu stolti: Coca Cola bellinum troðið í rassgöt barna. Byrjum á þessu:
Ekki er nóg með að hér sé verið að reyna að telja fólk á að kaupa Coca Cola - tilgangslausa, næringarsnauða, óholla, drepandi, vatnsstelandi og umhverfisskemmandi sykurleðju - heldur er markaðshópurinn börn og myndbandið þess vegna gert aðlaðandi fyrir börn; ævintýri, hasar, freisting og gleðilegur endir.
Ætlið þið að vera memm í dag; syngja maí-stjörnuna með vörubílstjórunum og hlusta á Ögmund á góðu verði niðrá Íngólfstorgi?
Ögmundur verður kanski bara seldur hæstbjóðanda, IKEA dreifir mótmælaspjöldum og hjúkkurnar syngja nallan, allir með kreppu í hjarta og bílflautur í eyrunum. Í fyrsta, öðru, þriðja, og Ögmundurinn er þinn.
Aftaka tekur myndir af því sem að henni þykir mynda vert.
Hér er komin tvenna;
og heilalaust salt,
Sumir telja svona lagað skemmdarverk. Hinsvegar er athugavert að auglýsingar sem er til þess eins gerðar að reyna að selja fólki eitthvað, séu úrskurðaðar heilagar gagnvart gagnrýni og viðbrögðum. Þær taka mikið pláss í umhverfi okkar t.d. í sjónvarpi, útvarpi, blöðum og öllu nánasta umhverfi og valda sjónrænu áreiti. Þær láta ekkert í friði og verða þessvegna ekki látnar í friði!