
Í kjölfar bankahrunsins síðasta haust var mikið um yfirlýsingar – en minna um aðgerðir. Textanum hér að neðan – Hví ekki að brenna bankana? – var dreift á mótmælafundum í skemmtilegu formati með veggspjaldi sem sýndi stóran hóp reiðs fólks á leiðinni í bankann að gera upp. Eins og er hafa engir bankar brunnið en veggspjaldið hangir nú á ísskápum og eldhúsveggjum um alla borg og texti þess er hálfmarklaus á meðan honum er ekki fylgt eftir.
Bankarnir eru hættir að hreikja sér af ofurbangsunum sínum en ímyndarþvotturinn heldur áfram. Nýjasta útspilið er ,,venjulegt fólk”. Já, venjulegt fólk eins og þú og hann og hún og ég. Starfsmenn ,,nýju” bankanna eru bara gunna og jón (með litlum stöfum því þau eru svo borgaraleg og ekkert rík) og þessir starfsmenn hafa ekkert slæmt á samviskunni heldur vinna bara vinnuna sína og fá bara næstum ekkert borgað fyrir.
Þessi tilkynning barst Aftöku rétt í þessu:
Boðuð eru Bankamótmæli á morgunn, hittumst á Austurvelli kl. 09 um morguninn.
Allir mæta sem vettlingi geta valdið og banka brotið!
Hér má sjá örmynd sem tekin var upp í sumar, en á afskaplega við nú í dag:
Við sjáum okkur til þess knúin að birta hér á Aftöku þessi tvö myndbönd um Glitni. Það er óþarfi að hafa mikið fleiri orð um málið, horfið á myndböndin… og jú eitt orð í viðbót: SKÍTAPAKK!
Til allra læmingja landsins:
Hlaupum öll saman,
stéttháir sem stéttlágir,
svitnum saman fyrir bankann okkar,
hann geymir vaxtavextina okkar og lánin þín!
Fari hann á hausinn eigum við engar skuldir lengur,
mínus minna en neitt til að þræla fyrir!!!
Svo hlaupum læmingjar, hlaupum,
hlaupum fyrir björg fyrir bankana!