Hér sérðu bara færslur með tagginu blogg:
Tögg: ,

OG FÖRUM ÚT Á GÖTURNAR NÚNA STRAX!

Bréf til bloggara landsins:

Ástandið er all svakalegt. Vilji fólk fylgjast almennilega með því sem er að gerast á Íslandi í dag (látum vera að skilja það allt saman),  krefst það þess að fólk sitji fyrir framan tölvuskjá allan daginn og ýti á ,,Refresh” hnappinn á 10 mínútna fresti. Fyrirtækjafjölmiðlar (e. corporate media) og ríkismiðlarnir eru stútfullir af fréttum tengdum kreppunni og uppfæra vefsíður sínar stanslaust svo ótal spurningar vakna.

mbl-mynd3Lesendur morgunblaðsins hafa kannski séð útdrætti úr völdum bloggum sem birtast framarlega á hverjum morgni, afdala internetleysingum til yndisauka. Þeir sem sáu útdrættina í gær og vildu lesa meira fóru kannski á síðu Ásgerðar Jónu til að fræðast um leyndardóma nafnleyndar, en kunnugir vita að þar hefur færslunni verið breytt! sjokk, hneyksli. Hver gerir svona lagað. Hér er því bloggfærslan birt í heild sinni eins og hún var upprunalega.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Login