Núna er umrót í samfélaginu og svo sannarlega þurfum við byltingu, þótt fyrr hefði verið. En hvernig byltingu? Það hljómar nefnilega rómó að klæða sig upp í rykfrakka og Stalín-hatt, halda ræðu og segja: “BYLTING, BYLTING” svo fólkið í kring fagnar, hrópar og klappar.

En svo þegar allt kemur til alls ertu kanski bara Jón Baldvin, einn af postulum kapítalismans, ert með Benz-bíllyklana í vasanum, flatt rassgat og gyllinæð af bræðralagi þínu við helstu valdníðinga þessa lands. Og kanski ertu líka með Havana-reyktan háls af langlegu í sendiherrabústaðnum þar sem þú kúkaðir gylltum kavíar ofaní uppskríllaða kjölturakka!
Bloggheimar eru heitir sem eldur eftir mótmælin á Austurvelli í dag. Bálið er vissulega þægilegt enda gott að ylja sér við ánægjuraddir fólks vegna róttækra aðgerða gegn kapítalismanum. Það er þó líka sárt, því enn má sjá bloggvini ríkisins væla, segja eggjakastið vera vanvirðingu við Alþingishúsið og sömuleiðis Bónus-fánann.
Og auðvitað leynast svo þar inn á milli aðdáendur lögreglunnar sem væla og væla. ,,Hvers vegna að veitast að lögreglunni?” spyrja þeir og aðrir taka undir: ,,Heyr heyr!”
Bónusfáninn var dregin að húni á toppi Alþingishússins í dag á meðan fjöldamótmæli stóðu yfir á Austurvelli! Fólkið fagnaði, hló og og kallaði “RÍKISSTJÓRNIN ER ÓDÝRT SVÍN!”
Með þessum gjörningi er bent á að fjármagnið og auðmenn stjórna landinu og ríkisstjórnin vinnur fyrir þá! Einnig bendir þetta á hversu ómerkileg svín starfa inn á Alþingi eins og svo vel er lýst í bókinni Animal farm!

Hver vill og verður ……..
Pólitískir flóttamenn frá lögreglunni á Suðurnesjum leita nú hælis. Þeir eru illa haldnir á vergangi og peningalitlir og segja Björn harðstjóra Bjarnason ásækja þá grimmilega!
Fitjar eru víst ekki öruggt skjól fyrir þessa pésa, né aðra, en frést hefur að nokkrir löggukallanna hafi fengið pólitískt hæli í Írak!
Gott fólk, hér eru nokkrir aðsendir bolir í keppni aftöku um dónalegustu bolina, við sendum hér smá úrval sem borist hefur.
Keppnin stendur hinsvegar enn yfir og þu getur tekið þátt með því að smella hér og gera þinn eigin bol og taka af honum skjá mynd og senda okkur á aftaka@riseup.net.
Þessi birting er bara aðeins til að æsa upp í fólki dólgsháttinn.
hehe
Stuttermabolakeppni Aftöku
Flottasti bolurinn vinnur ja … ekki neitt en það er auðvelt að taka þátt.
Það eina sem þú þarft að gera er að fara á þessa síðu búa til byltingarstuttermabol, taka skjámynd og senda okkur á aftaka@riseup.net.
Dónalegustu bolirnir verða birtir á síðunni.
Fréttatilkynning frá
17. Júní 2008
Byltingarfáni Jörundar hengdur á stjórnarráðið - Anarkistar níða þjóðfánann!
Rétt í þessu var byltingarfáni Jörundar Hundadagakonungs strengdur á fánastöng á þaki stjórnarráðsins. Þar flöktir hann ásamt íslenska fánanum sem án efa hefur vanhelgast við þessa meðferð. Þrír flatir þorskar blaka yfir íslenskum stjórnvöldum.
Þann 19. Júní nk. hefst pólítísk listahátíð í Reykjavík og stendur til 22. júní. Hátíðin heitir RÚST - Skapandi Andpsyrna - Nauðsynleg Skemmilegging og hefur samkvæmt heimasíðu hennar ,,það markmið að fjalla um samtímann á gagnrýninn, róttækan og spyrjandi hátt, þ.e.a.s. pólitískan.“
Flestir atburðir hátíðarinnar verða af (fjölmörgum ástæðum) ekki auglýstir, en fara fram á götum Reykjavíkur og ætti fólk því að hafa augun opin fyrir því sem mun gerast á götunni næstu daga. Á hátíðinni verða þó einnig fyrirlestrar og vinnustofur, sem verða auglýstar á síðunni og á veggspjöldum víðsvegar um borgina.