Ekki fyrir svo löngu síðan tilkynnti Reykjavíkurborg að stríði væri nú lýst yfir gegn götulist og húseigendur í miðborginni yrðu beittir sektum ef þeir kæmu ekki til móts við kröfur borgarinnar. Byrjað var að mála yfir hvert einasta veggjaverk í miðborginni, jafnvel heilu húsunum pakkað saman og máluð grá. Nú hefur aukin harka færst í fasistana sem standa bakvið þetta stríð, sem þykjast nú hafa algjört vald yfir því hvernig borgin lítur út.
Bókin Íslamistar og Naívistar kom út á seinasta ári hér á Íslandinu og í Danmörku nokkru fyrr. Fjallað var um hana í þætti Egils Helgasonar, Kiljunni, fyrir skömmu. Bókin fjallar víst um múslima og innflytjendur í tengslum við hryðjuverkahættu og fall vissrar siðmenningar.