Það er oft sagt vesturlöndum til hróss að hér sé málfrelsið þó alltaf virt. En málfrelsi má sín lítils ef sá sem mest þarf á því að halda hefur EKKI aðgang að málpípum samfélagsins, fjölmiðlum. Hér á eftir fer ofurlítil tilraun Aftöku til þess að fletta ofan af ritskoðun og fréttafölsunum íslenskra fjölmiðla í sambandi við málefni flóttamanna.

Síðustu árin hefur mýtan um frjálsa og hlutlausa fjölmiðlun fengið að viðhaldast og stækka. Oft heyrðist fólk segja að tími pólitískrar fjölmiðlunnar væri liðinn undir lok og rökstyðja mál sitt með að nefna til að mynda að dagblöð á borð við Þjóðviljann væru nú ekki lengur við líði. Á sama tíma og þessi mýta fékk að blómstra voru hér og eru enn starfræktir fjölmiðlar sem hafa enga sérstöðu hvað varðar eigendur, hagsmuni og hlutdrægni; Sjálfstæðissnepillinn Morgnblaðið, 365-veldið, Ríkismiðlarnir og DV. Og að einhverju leiti hefur þessum miðlum, með hjálp trúsamra og góðfúsra valdleysingja, tekist að ganga inn í þessa mýtu og svífa á skýi hins tilbúna og óraunverulega hlutleysis.
Almenningsálitsráðgjafinn Þorri Almennings skrifar:
Ég verð að viðurkenna að ég er löngu orðinn leiður á að fjalla um lögguna á vettvangi bloggblaðurs og víðar. En því miður blöskrar manni reglulega þegar augun eru rekin í öfgakenndan fréttaflutning frá valdstjórninni. Sérstaklega í aðal malgagni valdstjórnarinnar sem er Morgunblaðið undir ritstjórn Ólafs Stephenssen.
Í gær birtist á vefsíðu Morgunblaðsins frétt um ástandið á Gaza svæðinu. ,,Þúsund hafa látið lífið á Gaza” var titillinn og sagði fréttin frá því að yfir 1,000 mans hafa nú látist á Gaza, síðustu 20 daga. Og í þetta skiptið fannst fréttamönnum Mbl.is nauðsynlegt að taka það fram hvernig þeir hefðu látist – ,,í átökum Ísraela og Hamas-samtakanna”.
Og næsta klausa segir: ,,Á sama tíma eru menn orðnir vongóðir um að Hamas muni mögulega samþykkja vopnahlé og binda þar með enda á átökin.”
Á síðustu dögum hafa a.m.k. 680 manns verið drepnir í árásum Ísraelshers gegn íbúum Palestínu, þar af . Fyrr í vikunni var grænmetismarkaður á Gaza sprengdur í loft upp, 80 særðust alvarlega og 20 létust. Í gær voru 40 manns drepnir þegar Ísraelsher réðst gegn skóla á Gaza. Ástandið er vægast sagt skelfilegt.
Ágæti bloggari.
Vegna endurtekinna kvartana hefur verið tekið fyrir að þú getir tengt bloggfærslur við fréttir á mbl.is.
Kveðja, blog.is
Páll Magnússon útvarpsstjóri hefur nú krafist þess að G. Pétur Sigurðsson, fyrrverandi fréttamaður hjá Ríkissjónvarpinu skili myndbandi sem sýnir Geir H. Haarde, snemma árs 2007, fússa við og neita að svara of óþægilegum spurningum Péturs um efnahagsmálin. Pétur velti því fyrir Geir hvort ekki væri nægilegt aðhald í ríkisfjármálum og svo fór sem fór. Myndbandið má sjá hér neðst á síðunni.
Fjölmiðlar eru stór þáttur í lífi flestra. Fréttablöð fljúga inn um bréfalúgur, sjónvarps- og tölvuskjáir lýsa upp heimili fólks og útvörp drepa þögnina. Aftaka fjallar hér um þetta fyrirbæri, fjölmiðla.
DV ögrar lögreglu og stjórnvöldum
Þó seint verði stuðningi við Dagblaðið Vísi lýst yfir hér á Aftöku er ekki annað hægt en að taka ofan fyrir umfjöllun blaðsins á vígbúnaði þræla ríkissins, lögreglunnar. Síðustu daga hefur blaðið sagt frá brynvörðum bifreiðum lögreglunnar og sérþjálfuðum óeirðahundum. Tími umfjöllunar DV á vel við nú þegar reiði fólks gagnvart stjórnvöldum virðist aukast með hverjum degi og samhliða aukast líkurnar á því að lögreglan sjái ástæðu til að nota vígbúnað sinn.
Dagblaðið ‘NEI’ er nýtt dagblað og kemur út oft oft og það er verður pési að lesa!
Þú getur nálgast NEI-ið á þessari slóð hér: www.this.is/nei
Aftaka fagnar greinandi skrifum en fréttamiðlar landsins eru uppfullir af kreppu hitt og kreppu þetta án þess að skýra ástandið né þá heldur reyna þeir að segja satt.En þesskonar blaður er ekki stundað í dagblaðinu ‘NEI’ og klapp fyrir því!
Davíð Oddson, við sáum lítið viðtal við þig í gær í Morgunblaðinu, þar sem þú varst að tala um veikindi þín. Það hljómar eins og þú hafi verið verulega veikur, meðferðin hafi verið erfið og eins og þú segir sjálfur frá, hafir þú verið ,,nánast hálfur maður sem utanríkisráðherra” (sem fær mann vissulega til þess að hugleiða hvern fjandann þú hefðir gert af þér ef þú hefðir verið heill á þessu tímabili).