Mótmælaganga fór fram frá Hlemmi og niður að Austurvelli í gær. Skipuleggjendur göngunnar kröfðust þess að (A) ríkisstjórnin myndi víkja burt og (B) efnt yrði til nýrra alþingiskosninga sem fyrst. Hópur Anarkista var sammála fyrri liðnum en vildi þó ekki sjá kosningar, heldur samfélag án yfirvalda; samfélag skipulagt af þeim sem í því búa. Og til þess að koma því í gegn: sterka og stöðuga andspyrnu.
Björgólfi Guðmundssyni, stjórnarformanni Landsbankans, var veittur styrkur upp á þúsund krónur í fyrra. Það var listamaðurinn Brissó B. Johannsson sem veitti Björgólfi styrkinn úr eigin vasa og segir Björgólf vera vel að styrknum kominn þar sem hann hafi gert það virkilega gott hérlendis og í útlöndum. “Björgólfur hefur verið að gera það gott hérlendis og erlendis og hefur hann nært íslenska listamenn og útrás menningar af móðurlegri umhyggju”, sagði Brissó við þetta tilefni.
Nokkrar öryggismyndavélar í Reykjavík hafa gengið til liðs við byltinguna, hætt að njósna um fólk og líta upp til stjarnanna í staðinn. Aftöku barst bréf frá einni þeirra, sem sagðist aldrei hafa viljað sinnað því starfi sem henni var gert og því ákveðið að snúa sér frá götunum og upp til himins í staðinn.
Orðið á götunni er að sífellt fleiri myndavélar séu orðnar gráhærðar og græn-bólóttar á þessu endalausa glápi og persónunjósnum og séu við það að láta sig hverfa eða breyta stöðu sinni. Aftaka fagnar þessu og bíður þær allar velkomnar!
Já góðir hálsar, miðborgin verður nú öruggari með hverjum deginum. Allt lítur út fyrir að á næstunni verði komið upp færanlegri lögreglustöð á Lækjartorgi, miðborgarþjónar hafa tekið til starfa um helgar og nýlega var samþykkt tillaga um enn meiri öryggisráðstafanir; gangandi öryggismyndavélar. Fyrsta myndavélin tók til starfa í gær og af myndunum að dæma eru gangandi vegfarendur hæstánægðir með þessa jákvæðu þróun.
Svarthöfði ákvað að láta sjá sig við setningu Prestastefnu í gær og tók þátt í göngunni. Á myndum og umfjöllun íslenskra fjölmiðla að dæma lítur út fyrir að hin umburðarlynda kristna kirkja hafi ekki boðið Svarthöfða neitt sérstaklega velkominn í sitt lið.
Byggðarstefnan á landsbyggðinni hefur verið dæmd gagnslaus og því fara börnin til borgarinnar. Í borginni er tekið vel á móti þeim; nike fyrir alla, konur og kalla og krakka sem kunna að sauma, krakka sem kunna að vinna, krakka sem borga heim og stinga sig ekki á nálunum eða sauma af sér útlimi.
Börnin bjarga kreppunni, börnin klappa skuldahalanum á kvöldin, börnin segja hopp og börnin segja hí,
Innihald:
- Skotmark sem hefur unnið sér inn fyrir sendingunni.
- Terta
- Tertukastari
- Mögulegar viðbætur væru félagar sem sjá til þess að athygli öryggisvarða beinist annað í örlitla stund, vitni og ljósmyndarar og bílstjóri.
Leiðbeiningar: Að kasta rjómatertu í háttsettan einstakling afhjúpar og grefur undan valdakerfum samfélagsins með því að sýna fram á að þekkt andlit og valdamiklir einstaklingar eru alls ekki ósnertanlegir og alveg jafn kjánalegir og fólk almennt getur verið.
Aftaka fékk sent bréf og myndir áðan frá manneskju sem hellti rauðri málingu á Kínverska sendiráðið.
Við birtum bréfið hér í heild sinni:
Blood is coming from Chinese embassy
and I try to make it visible for everyone, not just for those who want to see.
My name is Jan Jiricek and I am a human being.
I uncovered the stream of blood comming from Chinese embassy in Reykjavik.
I hope it will feed the river of questions, debates, actions.