Hér sérðu bara færslur með tagginu grænþvottur:

Eco bíll minn rassÞegar ég kom hjólandi í átt að Háskólabíói í morgun var varla þverfótað fyrir glænýjum glansandi glæsijeppum, sportbílum og eigendum þeirra sem reyndu í örvæntingu sinni að finna stæði nógu nálægt bíóinu. Við bíóið var ótrúlegur fjöldi fólks sem flest virtist vera á hraðferð, of seint á viðskiptafund, fjárstýringu eða hvað annað sem peningakallar og -kellingar gera. Hver einasti maður var í jakkafötum; auðvitað ráðherrar, þingmenn, viðskiptafólk, einn núverandi og tveir fyrrverandi borgarstjórar. En líka hinir almennu valdlausu þrælar, nemendur og meira að segja íþróttaálfurinn var mættur - í jakkafötum.

Hér gefur að líta myndband nokkuð frá þessari aðgerð sem Saving Iceland og Groen Front! stóðu fyrir mánudagsmorguninn 11. febrúar sl. Njótið vel!

Grænt og gott

Á vefsíðu Alcoa á Íslandi birtist nýlega þessi frétt um einstaka góðvild fyrirtækisins. M.a. segir:

Þekkingarsetrið á Egilsstöðum ehf. hefur fengið 10 milljón króna styrk frá Alcoa Foundation til að undirbúa meistaranám á sviði umhverfis- og þjóðgarðastjórnunar.

Þekkingarsetrið á Egilsstöðum ehf. mun beita sér fyrir því að staðbundið háskólanám á Austurlandi hefjist árið 2009. Námið verður á sviði umhverfis- og þjóðgarðastjórnunar. Markmiðið er að kennsla fari fram á Austurlandi og byggi á sérstæðu náttúru Austurlands og auðveldu aðgengi að jöklum, öræfum, eldgosasvæðum og skóglendi. Einnig verður Vatnajökulsþjóðgarður vettvangur rannsókna á sviði stjórnunar og náttúru.

Hugtök á borð við óspillt náttúra, hrein orka og tengsl við náttúruna eru sífellt tengd við íslenska menningu. Landkynningar ríkisins byggja m.a. á þessari tengingu og ein slík á sér stað í Belgíu næstu mánuðina.

Hægt er að lesa meira um hátíðina og grænþvott ríkisins hér.

Sigur Rós í óspilltri náttúru.

Í lok febrúar hefst íslensk menningarhátíð í Brussel, sem stendur yfir í um fjóra mánuði. Hátíðin heitir því skemmtilega kaldhæðna nafni Iceland On The Edge eða Ísland á brúninni.

Grænþvottur

Dagskrá hátíðarinnar er skipt í fjóra flokka og ber einn nafnið Pure Energy. Í texta um þann flokk segir (lauslega þýtt): Í ferðabæklingum er hugtakið “Hrein Orka” yfirleitt notað yfir hina líflegu höfuðborg landsins, Reykjavík, en á hátíðinni táknar hún dínamískt samband menningar og (óspilltrar) náttúru. Hinn aðdáunarverði náttúrulegi bakgrunnur er ekki einungis brunnur innblásturs; heldur skapar og mótar hluta listaverkanna… eða er það kannski öfugt?

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Login