English 
Hér sérðu bara færslur með tagginu graffiti:

 …

Síðasta Laugardag, þann 4. Júlí, var hús við Hverfisgötu tekið yfir og notað undir listasýningu. Húsið, sem er í eign fasteignafyrirtækisins Festa (eiganda Sirkus, Hljómalindar og svo frv.), stendur við svokallaðan Hjómalindarreit þar sem til stóð að byggja glerhöll neyslu og velmegunar, en hefur nú verið breytt í sterílt og grátt torg. Málað hefur verið yfir allt graffití, hellur lagðar, borgarbekkir, ruslatunnur og ljósastaurar settir upp.

…

Tögg:

sannleikurinn um imf

kúgunin

Borgaryfirvöld hafa gefið frá sér yfirlýsingu þess efnis að fasískri stefnu Jakobs Frímans gagnvart veggjakroti sé nú aflétt. Fyrstu merki þess er myndin hér að ofan.

Tögg:

Okkur bárust þessar myndir – já, Aftakan góða er víða:

Aftaka Graffiti

Aftaka Graffiti

Tögg:

Þrátt fyrir að Jakob Frímann, Ólafur F. Magnússon, Magnús Sædal og fleiri óþokkar hafi sett af stað stríð gegn götulist í Reykjavík, er pólítískt götulistafólk enn á ferð. Enda geta bölvaðir kapítalistarnir ekkert gert til að stöðva andspyrnuna sem þeim mætir.

Stórfyrirtækjum og ríkisstjórnum er alveg sama um þig!

Mikið hefur verið skrifað um stríðið gegn götulist og viðbrögðin við því, hér á Aftöku. Hér er… Hreinlætisfasismi í Reykjavík, Við rústum ykkar gráu veröld!, Eitthvað Jákvætt? og Valdníðsla í verki – 5. hluti. Njótið vel…

Tögg:

banksy2.jpg

Graffarinn Banksy fokkar enn einu sinni í “Big brother” eftirlitsperrunum og potar í kjánalegar hugmyndir sem núna blómstra einnig í borgarstjórn Reykjavíkur.

Fyrir stuttu gaf Banksy eftirlitsfasista-perrunum puttann þegar hann gerði stærsta graffitílistaverk sitt hingað til og það innan svæðis sem er vaktað með 2 öryggismyndavélum. En enginn tók eftir honum.

Mehehe

1,2 og Banksíar Íslands, BOMM BOMM REYKJAVÍK….

banksy1.jpg


Tögg:

Graffiti RemovalÍ gær birti mbl.is þessa frétt undir titlinum ‘Jákvæð útrás’. Fréttin er um grunnskólastráka sem hafa verið að gera götulist og hafa uppá síðkastið verið á grafík-námskeiði í sínum skóla. Um námskeiðið segir kennarinn þeirra: „Þetta gengur út á það að fá stráka sem eru að fikta við veggjakrot til að vinna með grafík á hátt sem gæti skilað [...] einhverju jákvæðu“ en þeir hafa t.d. verið að vinna með að gera myndir sem svo eru prentaðar á boli og fleira í þeim dúr.

MurderersÁ mbl.is má sjá þessa frétt sem segir frá því að orðið Murderers eða Morðingjar hafi verið málað á kínverska sendiráðið. Aftöku lýst vel á þessa aðgerð og styður hana heils hugar.

Við viljum endilega fá sendar upplýsingar um allar aðgerðir sem þessar svo við getum birt þær hér á síðunni. Fjölmiðlar fara oft hægt í það að birta ítarlegar upplýsingar um þessa tegund mótmæla og er sú staðreynd ein af ástæðum þess að Aftaka var sett upp. Sendið okkur allt sem þið sjáið og heyrið á aftaka[at]riseup.net. Meira af þessu takk!

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in