Aftaka » graffiti

Hústaka til höfuðs grámyglunni
Síðasta Laugardag, þann 4. Júlí, var hús við Hverfisgötu tekið yfir og notað undir listasýningu. Húsið, sem er í eign fasteignafyrirtækisins Festa (eiganda Sirkus, Hljómalindar og svo frv.), stendur við svokallaðan Hjómalindarreit þar sem til stóð að byggja glerhöll neyslu og velmegunar, en hefur nú verið breytt í sterílt og grátt torg. Málað hefur verið yfir allt graffití, hellur lagðar, borgarbekkir, ruslatunnur og ljósastaurar settir upp.

Og vissulega er torgið skárra en tilvonandi kauphöll, en kerfi á borð við borgarskipulagið geta aldrei leyft svo lítið sem einn villtan fermetra innan síns valdaramma. Þess vegna eyða nú grunnskólakrakkar sumri sínu á þessu torgi, merkt Reykjavíkurborg, þar sem þau mála veggina gráa og rífa upp eina illgresið sem eftir var í borginni.

Komum í veg fyrir að Reykjavík verði enn ein steríla borgin, hönnuð af þeim sem völdin hafa. Sköpum okkar eigin umhverfi og ráðumst gegn þeim sem stefna að enn frekari mónó-menningu.

Hústökur vega gegn grámyglunni og stofnanafasismanum. Myndirnar tala sínu máli. Fleiri hústökur! Meira graffití!

Grár stofnanafasismi
Borgaryfirvöld hafa gefið frá sér yfirlýsingu þess efnis að fasískri stefnu Jakobs Frímans gagnvart veggjakroti sé nú aflétt. Fyrstu merki þess er myndin hér að ofan.

Því nýja “ófasíska” stefnan felur ekki í sér algjört frelsi fólksins til að tjá sig á veggi borgarinnar, heldur er nú hin græna herþjónusta borgarinnar í óða önn að mála steingrátt yfir allt veggjakrot sem ekki hefur fengið leyfi hjá borgaryfirvöldum. Að eigin sögn eru þau að hressa upp á borgina. Svo geta veggjakrotarar borgarinnar sent inn tillögur að kroti til borgarinnar, það fer í gegnum nefnd sem samþykkir eða samþykkir ekki krotið, allt eftir smekk og innihaldi verksins. Þar á eftir geta krotararnir sótt um styrki til gerð verksins.

Hið nýfundna frelsi felst í skrifræðisbákni og smekksfasisma borgaryfirvalda. Nei, engin frjáls tjáning, ekkert sjálfsprottið, ekkert ögrandi, ekkert ógnandi, bara krúttlegt, sætt, töff og gerilsneytt pólitík og dónaskap.

En vitið þið hvað: VIÐ RÚSTUM YKKAR GRÁU VERÖLD, SKÍTAPAKK!

Aftaka er víða
Okkur bárust þessar myndir – já, Aftakan góða er víða:

Götulist í Reykjavík
Þrátt fyrir að Jakob Frímann, Ólafur F. Magnússon, Magnús Sædal og fleiri óþokkar hafi sett af stað stríð gegn götulist í Reykjavík, er pólítískt götulistafólk enn á ferð. Enda geta bölvaðir kapítalistarnir ekkert gert til að stöðva andspyrnuna sem þeim mætir.

Mikið hefur verið skrifað um stríðið gegn götulist og viðbrögðin við því, hér á Aftöku. Hér er…  Hreinlætisfasismi í Reykjavík, Við rústum ykkar gráu veröld!, Eitthvað Jákvætt? og Valdníðsla í verki – 5. hluti. Njótið vel…

1,2 og Banksíar Íslands; BOMM BOMM REYKJAVÍK….
Graffarinn Banksy fokkar enn einu sinni í “Big brother” eftirlitsperrunum og potar í kjánalegar hugmyndir sem núna blómstra einnig í borgarstjórn Reykjavíkur.

Fyrir stuttu gaf Banksy eftirlitsfasista-perrunum puttann þegar hann gerði stærsta graffitílistaverk sitt hingað til og það innan svæðis sem er vaktað með 2 öryggismyndavélum. En enginn tók eftir honum.

Mehehe

1,2 og Banksíar Íslands,  BOMM BOMM REYKJAVÍK….

Eitthvað jákvætt?
Í gær birti mbl.is þessa frétt undir titlinum ‘Jákvæð útrás’. Fréttin er um grunnskólastráka sem hafa verið að gera götulist og hafa uppá síðkastið verið á grafík-námskeiði í sínum skóla. Um námskeiðið segir kennarinn þeirra: „Þetta gengur út á það að fá stráka sem eru að fikta við veggjakrot til að vinna með grafík á hátt sem gæti skilað [...] einhverju jákvæðu“ en þeir hafa t.d. verið að vinna með að gera myndir sem svo eru prentaðar á boli og fleira í þeim dúr.

Það er margt gott hér á ferð; líklegt er að þetta séu strákar sem hafa hingað til ekki passað inn í hið einsleita, bóklega menntakerfi og eins og kennarinn tekur fram – aðeins verið að fá neikvæð viðbrögð við því sem þeir eru að gera. Þess vegna er mjög gott að loksins sé þeim leyft að einbeita sér að því sem þeir hafa áhuga á og fá stuðning og aðstoð lengra kominna við að  fást við sína sköpun.

Aftaka sér ekkert að þessu, finnst þetta bara mjög gott þangað til…

…kennarinn segir einnig að hann vonist til að aðrir skólar taki þetta upp þannig að hægt sé að „vinna gegn veggjakroti áður en það byrjar. Að þeim [krökkunum] finnist veggjakrot kjánalegt þegar þeim er boðið að stunda það.“

Götulist er ekki kjánaleg, heldur eðlilegt viðbragð. Sá sem fær innblástur og verður fyrir áhrifum frá umhverfi sínu hlýtur að tjá sig á umhverfinu sjálfu. Götulist á ekki heima á galleríum eða söfnum, heldur einfaldlega á götunni. Á sama tíma og hún er viðbragð, kallar hún eftir viðbrögðum almennings og á því aðeins heima í almenningsrými.

Borginar sem við búum í eru uppfullar af áreiti; stórum auglýsingaskiltum, auglýsingaplakötum og -bæklingum. Munurinn á auglýsingunum og götulistinni er fyrst og fremst að auglýsingarnar eru til staðar til þess að reyna að selja okkur einverja vöru eða þjónustu á meðan götulistin er viðbragð við samfélaginu. Munurinn er einnig sá að auglýsingarnar hafa verið greiddar af fyrirtækjum sem græða á neyslu okkar.

Götulistin er ekki kjánaleg. Það sem er kjánalegt er samfélag þar sem allt byggist á peningum. Auglýsingar sem kosta peninga eða hvetja fólk til þess að nota peninga fá að vera í friði úti á götum, á meðan markvisst er unnið gegn götulist; heilu stríði gegn henni hefur nú verið lýst í Reykjavík. Hreinlætisfasisma hefur verið komið á, sem enn og aftur byggist á peningum; í þetta skiptið sektum sem beita á húseigendur ef þeir halda húsum sínum ekki innan ákveðinna staðla sem hreinlætisráð á vegum borgarinnar hefur skapað.

Peningahugsunin tröllríður öllu í okkar samfélagi og það má líka sjá í viðhorfi kennarans, sem vonast til þess að strákarnir geti fengið peninga út úr listsköpun sinni og bætir svo við “eitthvað jákvætt!” En hvað þýðir jákvætt?

Hvaðan koma bolirnir sem prentað er á? Getur verið að þeir komi frá Bangladesh, Tælandi eða Indónesíu? Búnir til af fólki sem fær minna en einn hundraðasta af endanlega söluverðinu fyrir vinnu sína?

Ókei, kannski er framleiðsla bolanna ekkert ósanngjörn en fólk verður að passa sig á þessu orði. Síðan hvenær er samasemmerki milli peninga og ‘einhvers jákvæðs’? Það er ekkert jákvætt við gróða sem verður til vegna sölu á lífsnauðsynjum, peninga sem verða til vegna stríðsrekstur, framleiðslu vopna, markaðsvæðingu kynlífs, þegar fólk og dýr eru arðrænd, kaup og sölu á vörum sem stuðla að eyðileggingu jarðarinnar, útrýmingu lífvera og eymd fólks.

Og hvers vegna ætti fólk endilega að vilja peninga og virðingu fyrir listsköpun sína, ef hún snýst um hvorugt? List á ekkert endilega að kalla fram jákvæð viðbrögð, heldur getur t.d. átt að afhjúpa ákveðnar hugmyndir, hópa eða manneskjur; kalla fram reiði vegna ákveðinna atburða; koma fram pólítískum skoðunum, vekja fólk til umhugsunar, jafnvel fá fólk til að þess að tjá sig.

Þetta viðhorf er bara enn eitt dæmið um þessa mjög svo útbreiddu hugmynd fólks um list; að hún skuli vera falleg og geta gefið peninga. Sú hugmynd að fólk fáist við listsköpun til að bregðast við samfélaginu er greinilega víðs fjarri, hugtakið ‘pólítísk list’ orðið banalt og hallærislegt. En sem betur fer eru ekki allir fastir inn á söfnum, skrifstofum og öðrum leiðindastöðum, heldur úti á götunni.

Það er svo merkilegt að í allri umræðunni um götulist skuli sumir einstaklingar halda að hægt sé að stöðva hana með nógu hörðum refsingum og þungum sektum. Götulist verður ekki stöðvuð á neinn hátt á meðan fólk hefur enn þörf á því að tjá sig í umhverfi sínu, um umhverfi sitt. Algjör útrýming götulistar er ómöguleg og allar tilraunir til þess kalla aðeins eftir þveröfugum áhrifum – verða að efni í áframhaldandi götulist.

Aftaka vonar að strákarnir í fréttinni halda áfram að gera áprentaða boli og annað í þeim dúr en haldi tvíefldir áfram götulist sinni. Það sama á um alla þá sem fást við götulist, því það er jákvætt.

Í tengslum við greinina kíkið á þennan vel heppnaða gjörning sem var framkvæmdur á götum Reykjavíkur nú á dögunum.

Meira Meira!
Á mbl.is má sjá þessa frétt sem segir frá því að orðið Murderers eða Morðingjar hafi verið málað á kínverska sendiráðið. Aftöku lýst vel á þessa aðgerð og styður hana heils hugar.

Við viljum endilega fá sendar upplýsingar um allar aðgerðir sem þessar svo við getum birt þær hér á síðunni. Fjölmiðlar fara oft hægt í það að birta ítarlegar upplýsingar um þessa tegund mótmæla og er sú staðreynd ein af ástæðum þess að Aftaka var sett upp. Sendið okkur allt sem þið sjáið og heyrið á aftaka[at]riseup.net. Meira af þessu takk!