Hústökuhreyfingin í Hollandi er í hættu. Lög gegn hústökum eru líkleg til að ganga í gegn á næstunni. Hreyfingin kallar á aðgerðir, hvar sem er í heiminum; hún kallar á samstöðu og einbeitningu í baráttunni gegn kapítalistum allra landa. Hér eru tvö áköll frá hollensku hústökufólki.
— — —
Ertu glæpamaður eða ertu heimilislaus? Veldu!

Ungpólitíkusarnir í Ungum Vinstri Grænum (UVG) eru nýgengnir af landsfundi sínum, skreyttir nýjum formanni og að því er virðist, róttækari hugmyndum. Ný vilja þau lögleiða hústökur hér á landi og nefna til hliðsjónar lög sem gilda um hústökur í Hollandi, þar sem eignarrétturinn er ekki alltaf algildur heldur þarf stundum að lúta í lægra haldi fyrir nýtingarréttinum. Í nýlegri ályktun UVG segist hópurinn ekki sjá neitt að því að fólk sem vantar þak yfir höfuðið dvelji í yfirgefnum húsum.
Fyrir tæpum tveim mánuðum tók hópur fólks sig saman og yfirtók tómt hús á Skólavörðustíg. Markmiðið var að opna þar anarkískt félagsrými. Það tókst! Hústakan hefur nú verið opin fyrir ýmiskonar starfsemi, allt frá fríbúð upp í matarboð og graffsvæði. Við á Aftöku tökum ofan fyrir hústökunni og hústökufólkinu og vonum að hún megi lengi lifa og vaxa fiskur um hrygg!
Í dag barst svo Aftöku eftirfarandi skilaboð frá félagsrýminu við Skólavörðustíg:
Síðasta Laugardag, þann 4. Júlí, var hús við Hverfisgötu tekið yfir og notað undir listasýningu. Húsið, sem er í eign fasteignafyrirtækisins Festa (eiganda Sirkus, Hljómalindar og svo frv.), stendur við svokallaðan Hjómalindarreit þar sem til stóð að byggja glerhöll neyslu og velmegunar, en hefur nú verið breytt í sterílt og grátt torg. Málað hefur verið yfir allt graffití, hellur lagðar, borgarbekkir, ruslatunnur og ljósastaurar settir upp.
Í dag var fríbúðin á Vatnsstíg 4. opnuð á ný. Búðin, sem er starfrækt á þann hátt að fólk getur bæði komið með og tekið vörur án þess að borga krónu fyrir, var fyrst opnuð Laugardaginn 11. Apríl en var lokað fjórum dögum seinna þegar lögreglan reif í sundur húsið og bar fólk út með eftirminnilegum hætti. Búðin fylltist samstundis enda nóg af affalli undan því ógeðslega ofneyslu samfélagi sem við búum í. Gangandi vegfarendur líttu við og nýttu sér þessa óþekktu leið til að ,,versla”.
Hér eru myndir sem ein úr hústökuliðinu tók inní húsinu.
Myndirnar eru teknar frá kl. 15:00 á þriðjudeginum og þar til varðhundar auðvaldsins ruddust slefandi brjálaðir inn í loka vígi hústökufólksins. Þegar handtakan fór fram tók lögguruglan myndavélina og eyddi öllum myndunum. Það gekk þó ekki betur en svo að hægt var að endurheimta þær allar með lítilsháttar fyrirhöfn.
Hér verður einhverri forvitni svalað. Gjörið svo vel!
Frá klukkan 13.30 í dag, miðvikudag, við lögruglustöðina á Hverfisgötu.
Nú hafa 16 manns verið teknir höndum fyrir hústökuna á Vatnsstíg. Lögreglan réðst að húsinu með miklu valdi. Húsið var hakkað í sundur með vélsögum og sleggjum, að ástæðulausu. Lögreglan handtók, með miklu valdi, einnig einn úr hópi þeirra sem stóðu fyrir utan og fylgdust með og mótmæltu aðför lögreglu að húsinu.
Eftirfarandi yfirlýsing var lesin upp við samstöðufund hústökunnar við Vatnsstíg 4. kl. 15:00 í dag.
Það er stórkostlegt að sjá ykkur öll hér í dag. Þetta köllum við samstöðu! Við sem stöndum að þessari hústöku ætlum okkur að breyta því peningadrifna samfélagi sem við búum í. Partur af því er að verja þetta hús; hús sem átti að fara í kjaft kapítalsins því hér var fyrirhugað að reisa heljarinnar verslunar- og skrifstofuferlíki.
Í gær framkvæmdi hópur fólks pólitíska hústöku við Vatnsstíg 4 og opnaði þar félagsrými fyrir róttæka starfsemi andspyrnuhópa, listamanna, hugsuða og bara allra sem áhuga hafa á slíku. Opnunarboð fór fram á milli 17:00 og 19:00 þar sem boðið var upp á mat, tónlist, ljóðalestur, skoðunarferð um húsið og upplýsingar um hústöku.
Yfirlýsing hústökufólksins og myndir frá atburðinum eru hér að neðan. Bendum einnig á fína umfjöllun dagblaðsins Nei. sem finna má hér auk fjölda mynda.