,,Áfram með lífið” er yfirskrift tónleika sem fara fram í Laugardalshöll í kvöld og eru Íslendingar hvattir til að gera sér glaðan dag saman. Það er fjörkálfurinn og (að eigin sögn) fyrrum auðmaðurinn Bubbi Morthens stendur að tónleikunum og auk hans koma fram tíu stykki íslenskra meginstraums hljómsveita og listamanna. Öll syngja þau saman: ,,Áfram með lífið!”
Bubbi og safnarbörnin
Garðsláttur veldur deilum
Enn berast lögreglu tilkynningar
um garðslátt
á ókristinlegum tíma.
Nær alltaf er kvartað vegna sláttumanna
sem eru að störfum
Mjög seint á kvöldin
eða nóttunni.

Í gærmorgun barst hinsvegar kvörtun
vegna manns
sem hafði ráðist
í garðslátt
á höfuðborgarsvæðinu snemma morguns.
Nágrannar hans voru ekki par hrifnir
og höfðu samband
við lögreglu
en málið leystist
farsællslega.
Gera má ráð fyrir að tilkynningum
af þesu tagi
fækki mjög á næstunni
enda er sumarið brátt á enda.
Þann 19. Júní nk. hefst pólítísk listahátíð í Reykjavík og stendur til 22. júní. Hátíðin heitir RÚST - Skapandi Andpsyrna - Nauðsynleg Skemmilegging og hefur samkvæmt heimasíðu hennar ,,það markmið að fjalla um samtímann á gagnrýninn, róttækan og spyrjandi hátt, þ.e.a.s. pólitískan.“
Flestir atburðir hátíðarinnar verða af (fjölmörgum ástæðum) ekki auglýstir, en fara fram á götum Reykjavíkur og ætti fólk því að hafa augun opin fyrir því sem mun gerast á götunni næstu daga. Á hátíðinni verða þó einnig fyrirlestrar og vinnustofur, sem verða auglýstar á síðunni og á veggspjöldum víðsvegar um borgina.
Vegna umræðunnar um graffití ákvað ég að setja inn þennan litla fréttabút um graffití sem listamaðurinn Bansky setti upp á aðskilnaðarmúrnum á Vesturbakkanum.
Meira um götulist á Aftöku á næstunni…
Í lok febrúar hefst íslensk menningarhátíð í Brussel, sem stendur yfir í um fjóra mánuði. Hátíðin heitir því skemmtilega kaldhæðna nafni Iceland On The Edge eða Ísland á brúninni.
Dagskrá hátíðarinnar er skipt í fjóra flokka og ber einn nafnið Pure Energy. Í texta um þann flokk segir (lauslega þýtt): Í ferðabæklingum er hugtakið “Hrein Orka” yfirleitt notað yfir hina líflegu höfuðborg landsins, Reykjavík, en á hátíðinni táknar hún dínamískt samband menningar og (óspilltrar) náttúru. Hinn aðdáunarverði náttúrulegi bakgrunnur er ekki einungis brunnur innblásturs; heldur skapar og mótar hluta listaverkanna… eða er það kannski öfugt?