Hér sérðu bara færslur með tagginu lýðræði:

kjörkassinn

Hvernig tókst þessum 9,4% að kjósa nei? Það er ótrúlegt miðavið kjörseðilinn!

Þessar skoðanakannanir segja jafn mikið um skoðanir landans á málefnunum líðandi stundar og skolpkerfi Reykjvíkur segir um Halldór Laxnes.

í lýðræðisríkinu Íslandi eru allir eru hvattir til að láta sína skoðun í ljós og hafa þar með áhrif á framgang mála.

lýðræðið

Kæri kjósandi: Láttu þína rödd hljóma í drullupyttinum!

Því þín skoðun skiptir máli. Hana má líka kaupa með pulsu og kóki!

Þessi birtingarmynd lýðræðisins fannst á vefsíðu vísis.is í dag.

Hannes BananiAftöku barst þessi skemmtilega mynd af Hannesi Hafstein með banana í hendinni. Myndinni fylgir sú saga að bananinn hafi svo ekki verið fjarlægður heldur fékk hann að þroskast í hendi hans og varð smám saman brúnn og á endanum samdauna styttunni.

Svona hefur bananinn fengið að verða brúnni og brúnni í hendi íslenskra valdhafa í áraraðir og á endanum orðið eitt með þeim.

Skoðanakúgun Lög og réttur eru undirstaða þess að samfélag manna geti virkað. Þar sem fleiri en tveir koma saman verður alltaf nauðsynlegt að einhvers konar samningur sé fyrir hendi svo stöðugleiki og friður geti haldist, hvort sem sá samningur er skrifaður eða óskrifaður. Þetta eru, að mínu mati, óhagganleg sannindi og það er því svo gott sem úti um allar anarkískar tilhneygingar af minni hálfu. Það er ekki þar með sagt að ég sé ósammála anrkískri hugmyndafræði að öllu leyti, síður en svo; hún leggur til ómetanlega gagnrýni á ríkjandi ástand og dregur oft veikleika þess fram í dagsljósið. Einn slíkur veikleiki er einmitt óþolandi fylgifiskur löghlýðni og yfirvalds: ótti.

Umræða og skoðannaskipti um mótmæli hafa færst í aukanna upp á síðkastið hér á landi og á Saving Iceland hópurinn stóran þátt í þeirri þróun. Eftir að hópurinn hóf mótmæli sín gegn stóriðjustefnu íslenskra stjórnvalda hafa alls kyns raddir farið að heyrast um mótmæli yfir höfuð, tilgang þeirra, árangur og réttmæti.

Þótt greinilega hafi viðhorf margra Íslendinga breyst í kjölfar aðgerða Saving Iceland og fleiri og fleiri aðhyllist nú óhefðbundnar mótmælaaðgerðir, hefur krafan um hefðbundin mótmæli einnig orðið sýnilegri hjá fjölmiðlafólki, stjórnmálamönnum, lögreglu, nokkrum atvinnubloggurum og þremur litlum menntaskólastrákum. *

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Login