Hér sérðu bara færslur með tagginu lygar:
Tögg:

Heimasíðan In Defence - Icelanders Are Not Terrorists vekur nú mikla athygli, en á síðunni er hægt að skrá sig á undirskriftalistann We are not terrorists og beina þar með réttum skilaboðum til Gordons Browns.

Fjölmargir Íslendingar hafa sent síðunni myndir af sér, haldandi á pappír með skilaboðum á borð við ,,Do we look like terrorists?” því eins og réttilega hefur verið bent á hér á Aftöku líta Íslendingar alls ekki út eins og hryðjuverkamenn, enda ekki brúnir á hörund, með langt skegg og túrban.

Tögg:

Við erum sko ekki terroristar, spurðu bara Yoko! Jónas Björgvinsson er maður ársins hér á Aftöku - mikil er sú speki sem hann birti á þessari síðu.

Spurðu bara Yoko!

Tögg: ,

Skóflustunguhornið á Austurvelli

Í hádeginu í dag opnaði Skóflustunguhorn Alþingis formlega á Austurvelli. Þingmönnum, ráðherrum, starfsmönnum Alþingis, fjölmiðlum og íslensku þjóðinni var boðið að koma og taka þátt í þessari glæsilegu athöfn. Skóflustunguhornið er jú mikið þarfaþing og góð búbót fyrir valdníðinga landsins, nú þegar kreppir að. Eftirfarandi boðskort var sent á lýðinn:

Kæri viðtakandi;

Þér er boðið að vera viðstaddur og taka þátt í vígsluathöfn glænýs Skóflustunguhorns Alþingis á Austurvelli.

Krepputilboð! Krepputilboð!

Fjölskylduferð í Öryggisráðs-Sirkusinn á aðeins 249 milljónir. Skoðunarferð um álverið á Reyðarfirði í kaupæti.

Sirkusinn

Í dag birti vefsíða Morgunblaðsins bréf sem sagt var að væri fá Bretanum Adrian Brain, sem heimsótt hefur Ísland og er víst ákaflega óánægður með framkomu Gordons Brown gagnvart Íslandi. Í opnu bréfi sínu til íslensku þjóðarinnar biðst hann afsökunar. Takið ykkur örstutt hlé til að æla.

Tögg:

Tögg: ,

Frá Læknum…

Suss… ekki tala um skítinn. Suss… jakkafatakallarnir eru svo viðkvæmir fyrir sínum eigin niðurgangi. Ekki segja satt!

Nú skal sitja, þegja, hlýða og vera góður. Ekki orð!

Það má ekki valda fólki óþarfa kvíða. Það er nógu erfitt að vera til svona í kreppunni - stórsköðuð lífsgæði og matarskortur. Ekki tala um skítinn.

Tögg: ,

Bra bra með vinum sínumEins og kemur fram í þessari frétt vaktar lögreglan kínverska sendiráðið í Reykjavík allan sólarhringinn. Lögreglumaðurinn sem var svo óheppinn að vera á vakt þegar fréttakona Stöðvar 2 kom á svæðið virtist ekki hafa hugmynd um hvers vegna þessi vöktun ætti sér stað… “Við erum bara hérna” sagði hann. Aðspurður um hvort einhver ofbeldisverk hefðu átt sér stað við sendiráðið sem gæfu tilefni til þess að lögreglan vaktaði svæðið sagði hann svo ekki vera, nema það sem áður hefur komið fram. Hvað á maðurinn við?

mbl-mynd3Lesendur morgunblaðsins hafa kannski séð útdrætti úr völdum bloggum sem birtast framarlega á hverjum morgni, afdala internetleysingum til yndisauka. Þeir sem sáu útdrættina í gær og vildu lesa meira fóru kannski á síðu Ásgerðar Jónu til að fræðast um leyndardóma nafnleyndar, en kunnugir vita að þar hefur færslunni verið breytt! sjokk, hneyksli. Hver gerir svona lagað. Hér er því bloggfærslan birt í heild sinni eins og hún var upprunalega.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Login