Hér sérðu bara færslur með tagginu mótmæli:
Tögg:

 Rjómatertu í þetta andlit

Hafi lægstvirtur 4. valdníðingur, Björn Bjarnason, tekið eftir auknum lestri á vefsíðu sinni síðan Janúar sl. er það að hluta til vegna gífurlegs áhuga allra Aftöku-penna á skrifum hans. Af öllum bloggsíðum landsins er síða Bjarnarins eflaust ein sú áhugaverðasta. Á hverjum degi eitthvað nýtt, alltaf er hægt að skemmta sér yfir skrifum hans og nokkuð oft má finna frásagnir sem meginstraums- og fyrirtækjafjölmiðlar landsins birta ekki.

Og í dag er svo.

Þar er full ástæða til þess að taka ofan fyrir ákveðnu fólki hér á landi vegna tveggja atburða sem áttu sér stað í dag. Það má með sanni segja að almenningi, eða að minnsta kosti þessum hluta almennings, sé að fara fram þegar kemur að andpsyrnuaðgerðum gegn ríki og auðvaldi. Því ber að fagna.

Leðurfákar skipta sér af og krefjast hlýðni

Alþingismenn lokaðir úti

Flautað gegn auðmönnum

Ágætis gjörningur átti sér stað í morgun á Miklubrautinni þar sem borðar höfðu verið hengdir á þrjár göngubrýr, hver með ákveðnum skilaboðum. Fólk var hvatt til að flauta ef það vildi ekki borga skuldir auðmanna, vildi ekki að börn sín borguðu skuldirnar og ef fólk vildi nýja stjórn Seðlabanka.

Tögg:

Eftirfarandi tilkynningu er nú dreift um netheima:

Fylkjum saman liði undir svörtum fánum næstkomandi laugardag (1/11) klukkan tvö við Hlemm!

Hörður Torfason og Kolbrún Baldvinsdóttir vilja ríkisstjórnina burt, við viljum ríkisstjórnina, kapítalismann, kirkjuna og ríkið burt! Hvenær ef ekki nú er rétti tíminn?

Ef kosningar breyttu einhverju væru þær ólöglegar! Mætum öll og mætum með læti!

Aftaka tekur undir þetta, jahá!

Tögg:

Umhverfissinni handtekinnFréttatilkynning frá Saving Iceland

Norðurál/Century Aluminium hafði vonast til að geta haldið upp á fyrstu skóflustungu nýs álvers í Helguvík án nokkurra vandamála í gær, en umhverfissinnar og íslenskir fjölmiðlar voru á öðru máli.

Hópur fólks mætti að athöfninni til að mótmæla byggingu álversins, vegna þess hversu eyðileggjandi áhrif það mun hafa á náttúru Íslands og samfélag og efnagslíf á suðvestur horni landsins. Hópurinn þverneitaði að halda sig innan ákveðins “mótmælareits” sem lögreglan hafði útbúið handa hópnum, en reiturinn var langt frá því að vera sýnilegur frá athöfninni sjálfri og þar af leiðandi ekki möguleiki að hróp og köll hópsins hefðu nokkur áhrif á athöfnina.

Tögg:

Umfjöllun Vilhelms Vilhelmsonar um 1. Maí í Kaupmannahöfn.

AntifaHér í Danmörku hafa hin hefðbundnu 1.maí hátíðahöld breyst úr baráttufundum yfir í pulsupartí líkt og víðast hvar annarsstaðar, t.d. Íslandi. Kratar safnast saman og drekka bjór og borða pulsur, ekki orð um baráttu, alþjóðlega samstöðu, óréttlæti og kapítalisma. En ólíkt stöðunni á Íslandi þá hafa róttæklingar hér í Danmörku einfaldlega skipulagt aðrar göngur, aðra fundi, þar sem lykilorðin eru barátta gegn kapítalisma, heimsvaldastefnu, einsleitnisvæðingu og, sérstaklega, gegn rasisma. Þannig hefur nú í 15 ár verið skipulögð ganga og svo hátíðahöld undir nafninu “Antifasistisk 1. mai.” Ég var að sjálfsögðu þar.

Bréf til vörubílstjóranna sem mótmælt hafa síðustu vikurnar:

vorubilstjori.pngÁstæðan fyrir því að við höfum ekki skrifað fyrr um baráttu ykkar er sú að framan af vorum við ekki viss um hvort að hún væri að sama meiði og okkar, eða af hvaða meiði hún væri yfir höfuð. Hinsvegar studdum við aðferðir ykkar, þ.e. að færa baráttuna, ósættið, út á göturnar, láta verkin tala. Og sterk mótspyrna ykkar gegn tilraunum valdhafa til að þagga niður í málstað ykkar og kröfum er aðdáunarverð og skemmtileg.

Fréttatillkynning frá umhverfishreyfingunni Saving Iceland 

Mánudaginn 21. apríl 2008 kemur stofnandi Saving Iceland, Ólafur Pall Sigurðsson fyrir héraðsdóm Austurlands ákærður fyrir eignaspjöll. Ákæran er til komin vegna atburða í mótmælabúðunum við Snæfell í júlílok 2006.

Öll borgaraleg vitni segja að fjórhjóladrifsjeppa lögreglunnar hafi viljandi verið ekið á Ólaf Pál á hraða sem gat haft lífshættu í för með sér. Ökumaðurinn, Arinbjörn Snorrason, lögregluþjónn nr. 8716 og háttsettur við stjórn aðgerðanna við Kárahnjúka, reyndi einnig að aka yfir aðra mótmælendur við mörg önnur tækifæri þetta sumar sem og við Lindur (nú undir vatni en þar voru mótmælabúðir Saving Iceland) og við mótmælaaðgerðir á byggingarsvæði Desjarárstíflu.

Í fyrradag, 15.apr. gerði hópur sem kallar sig ‘enginn er ólöglegur’ eða á frummálinu ‘Ingen människa är illegal’ tilraun til að stöðva brottvísun hins 23 ára Jamil Mohammed Burhan frá Svíþjóð. Mótmælendurnir, eða aðgerðarsinnarnir, reyndu að stöðva flugtak vélarinnar sem átti að flytja Jamil úr landi. Níu manns voru handteknir, þar af sex við að klifra yfir flugvallargirðinguna en hinir þrír eftir kómískan eltingaleik á flugbrautinni þar sem jeppar voru notaðir til að ‘hlaupa’ aktívistana uppi. Jamil Mohammed Burhan er fæddur og uppalinn í Sádi Arabíu en foreldrar hans, sem fæddir eru í Erítrea, og öll hans fjölskylda búa þar enn. Það er ekki vitað hvaða, ef nokkurn, ríkisborgararétt hann hefur en hann hefur ekki rétt á að snúa aftur til Sádi Arabíu. Hann kom fyrst til Svíþjóðar í ágúst 2002 og sótti um hæli. Umsókn hans var hafnað í desember 2003, áfrýjun þess úrskurðar var svo hafnað 27.okt. 2004 á þeirri forsendu að hann hefði aldrei komið til Erítrea og þyrfti þess vegna ekki að óttast stjórnvöld þar. UN High Commissioner for Refugees (UNHCR) mælir gegn að nokkur ríkisstjórn sendi hælisleitendur frá Erítrea aftur til baka þar sem þeir eiga hættu á að vera haldið incommunicado og pyntaðir þar sem hælisumsóknir eru álitnar landráð. Í besta falli verður hann settur í lífstíðar herþjónustu- versta falli pyntaður til dauða. Amnesty hefur einnig lagst harðlega gegn brottvísun Burhans og haldið uppi herferð til að fá ákvörðun sænska ríkisins breytt. Svíþjóð er eina ríki Evrópu sem sendir fólk gegn vilja sínum til Erítrea þar sem þúsundum manna er haldið í einangrun um ókomna tíð án ákæru og réttarhalda og líða reglulegar pyntingar. Við fyrstu tilraun til að koma honum úr landi streittist hann svo á móti að flugstjóri vélarinnar neitaði að taka á loft. Í annað skipti tókst að koma honum alla leið niður til Erítrea en þar var honum neitað um landvistaleyfi svo þurfti að fljúga hann aftur inn til Svíþjóðar og nú mánuði seinna, eftir að gengið hefur verið frá allri pappírs vinnu er hann aftur á leið til hins stríðshrjáða einræðisríkis.

MurderersÁ mbl.is má sjá þessa frétt sem segir frá því að orðið Murderers eða Morðingjar hafi verið málað á kínverska sendiráðið. Aftöku lýst vel á þessa aðgerð og styður hana heils hugar.

Við viljum endilega fá sendar upplýsingar um allar aðgerðir sem þessar svo við getum birt þær hér á síðunni. Fjölmiðlar fara oft hægt í það að birta ítarlegar upplýsingar um þessa tegund mótmæla og er sú staðreynd ein af ástæðum þess að Aftaka var sett upp. Sendið okkur allt sem þið sjáið og heyrið á aftaka[at]riseup.net. Meira af þessu takk!

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Login