Hér sérðu bara færslur með tagginu saving iceland:

Búðir 2007 Saving Iceland,
12. Júlí, 2008

AÐGERÐABÚÐIR SAVING ICELAND Á HELLISHEIÐI

Fjórðu aðgerðabúðir Saving Iceland eru nú hafnar í fallegum dal á Hellisheiði; svæði sem er í hættu vegna framkvæmda Orkuveitu Reykjavíkur á svæðinu. Stækkun Hellisheiðarvirkjunar á sér nú stað til þess að afla orku fyrir stækkun álvers Norðuráls á Grundartanga og aðrar stóriðjuframkvæmdir á Suðvestur horni landsins.

XXX Rottweilerhundar hafa gefið út lagið og myndbandið Reykjavík Belfast og notast í þar við hljóð- og myndupptökur frá óeirðum síðustu viku við Rauðavatn. Viðlagið eru hin margfrægu og vinsælu orð “GAS! GAS! GAS!” sem ofbeldisfullir lögreglumenn öskruðu hvað eftir annað á sama tíma og þeir sprautuðu piparúða á mótmælendur.

Í fréttatíma stöðvar 2 í kvöld sagði Erpur Eyvindarson, einn meðlimur Rottweilerhunda, að lagið væri ádeila á harkalegar aðgerðir lögreglu gagnvart meðlimum Falun Gong og Saving Iceland síðustu árin. Nýliðnar aðgerðir gegn vörubílstjórum séu dropinn sem fyllti mælinn.

Eftir að hafa lesið greinina skoðunakúgun fannst mér upplagt ad setja inn þetta myndband.

Það sýnir frá götupartýi Saving Iceland, Rave Against the Machine, 14. júlí 2007.

Fréttatilkynning
Saving Iceland
12. febrúar 2008

LJÓSI VARPAÐ Á GRÆNÞVOTT ÁLIÐNAÐARINS

Í gærmorgun, mánudaginn 11. febrúar, kl. 08:30 truflaði Saving Iceland opnun tveggja daga ráðstefnunar Metals: Energy, Emissions and the Environment í Brussel.

Ráðstefnunni lokað Um tuttugu manns lokuðu tímabundið aðgangi að Radison Sas Royal Hótelinu þar sem ráðstefnan fór fram, með keðjulásum og ál-sorpi. Aðgerðinni var beint að ALCOA, Rio Tinto-ALCAN og Hydro, sem á þessari ráðstefnu kynna ál sem “sjálfbæran” málm.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Login