Lög og réttur eru undirstaða þess að samfélag manna geti virkað. Þar sem fleiri en tveir koma saman verður alltaf nauðsynlegt að einhvers konar samningur sé fyrir hendi svo stöðugleiki og friður geti haldist, hvort sem sá samningur er skrifaður eða óskrifaður. Þetta eru, að mínu mati, óhagganleg sannindi og það er því svo gott sem úti um allar anarkískar tilhneygingar af minni hálfu. Það er ekki þar með sagt að ég sé ósammála anrkískri hugmyndafræði að öllu leyti, síður en svo; hún leggur til ómetanlega gagnrýni á ríkjandi ástand og dregur oft veikleika þess fram í dagsljósið. Einn slíkur veikleiki er einmitt óþolandi fylgifiskur löghlýðni og yfirvalds: ótti.