Hér sérðu bara færslur með tagginu squat/hústaka:

4.gif

Síðastliðið Föstudagskvöld, 4. Apríl, átti sér stað myndlistarsýning, tónleikar og partý í yfirgefnu húsi við Klapparstíg, þar sem skemmtistaðurinn Sirkus var áður til húsa. Nýskrúfaðar tréplötur voru teknar af, hurðin opnuð og gamanið hófst.

Það þarf ekki meira en einn rafmagnsmótor til að halda svona partý, stinga græjunum í samband og láta orðið berast. Ef svo leiðinlega vill til að einhver asni þakinn endurskinsmerkjum slekkur á mótornum er það bara undir nýjum húsráðendum komið hvernig bregðast skal við. Á Föstudaginn var farið rólega í þær aðgerðir…

Fyrr í vikunni voru fánar hengdir á flaggstangir danska sendiráðsins í Reykjavík og setningin “We will never forget” skrifuð á það. Samkvæmt þessari frétt voru á ferðinni stuðningsmenn Ungdómshússisns og birtist þar fréttatilkynning sem hljóðar svona:
Danska sendiráðiðVið skrifuðum “we will never forget” á danska sendiráðið á Íslandi í tilefni þess að eitt ár er liðið frá niðurrifi Ungdomshússins í Kaupmannahöfn. Hauskúpan hefur verið tákn Ungdómshússins og talan 69 einnig en hún var rituð á annan fánann. Við munum aldrei gleyma og við gefumst ekki upp.

Sl. Laugardag, þann 1. mars, var eitt ár liðið síðan notendur Ungdómshússins í Kaupmannahöfn voru bornir út af lögreglunni og fjórum dögum seinna var húsið rifið, en í nokkra mánuði höfðu dönsk yfirvöld gefið í skyn að útburðurinn myndi eiga sér stað. 

Í desember 2006 leit úr fyrir að svo myndi gerast og fylktu unnendur hússins liði til Kaupmannahafnar til að standa vörð um þessa mikilvægu miðstöð anarkisma, pönks, hústöku og annarar and-kapítalískrar menningar. Miklar óeirðir áttu sér stað sem fengu heimsathygli - Undómshús-verjar börðust af fullum krafti svo ekkert varð úr áætlun yfivalda.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Login