Í dag kom til landsins hópur Palestínskra flóttamanna sem hefur búið við vond skilyrði í flóttamannabúðum í Írak við landamæri Sýrlands. Flóttafólkið fær heimili á Akranesi þar sem tekið er á móti þeim með opnum örmum (fyrir utan einn mann sem setti hendur í vasana).
Almenningslistaverkinu sem nú stendur uppi í Þjóðarbókhlöðunnar og er rannsóknarverkefni, er ætlað að leyfa almenningi að tjá sig um veru og för hersins hér á landi. Þangað til á sl. mánudag höfðu fjölmargir tekið sér pensil í hönd og skrifað eða teiknað hugsanir sínar og skoðanir á strigana fjóra sem ætlaðir eru til þess.
(Sjá meira um framhald málsins - hér er grein um viðbrögð fjölmiðla)
Fjórir STÓRIR strigar, engir öryggisverðir og helllllllling af svartri málningu…
Á Þjóðarbókhlöðunni er nú í gangi rannsóknar-sýningin “För hersins” eftir Sólveigu Dagmar Þórisdóttir. Sýningin er liður í lokaverkefni hennar í M.A.-námi í hagnýtri menningarmiðlun við Hugvísindadeild Háskóla Íslands. jeje
Á sýningunni hanga upp 4 hvítir málingarstrigar og texti til hliðar sem segir: “tjáðu þig um veru og för hersins á strigann”, á borði liggja málning og litir.