Hér sérðu bara færslur með tagginu tekið ofan:

Hahaha, Aftaka tekur ofan fyrir þessum gjörningi gegn hinni blóðugu Valhöll Sjálfstæðismanna!

valhöll rauð rauð mehehe

Brot úr fréttum Moggans í dag:

Lögreglan hafði í nógu að snúast í nótt. Valhöll máluð, flugeldur sprengdur við alþingishúsið og brotist inn í Ármúla. Innbrotin voru fleiri.  

Já, nú er engin miskunn gagnvart þeim sem hafa verið kúgarar og lygarar í þessu samfélagi! Áfram, áfram og ekki gefast upp fyrr en ránfuglinn er fallinn og Bónusgrísinn og kapítalisminn sömuleiðis!

Aftaka tekur ofan fyrir þessum gjörningi þeirra Yes-Manna sem þeir framkvæmdu í gær.

Hópurinn í samvinnu við róttæka blaðamenn, bjó til og prentaði blað sem leit nánast eins og The New York Times, en forsíðu fréttin var að Íraks- og Afganistanstríðunum væri lokið, búið væri að setja hámarkslaun fyrir framkvæmdastjóra og að allir bensínknúðir bílar yrðu nú innkallaðir. Þetta blað var síðan prentað í miljón eintökum og dreift!

New York Times eins og það ætti frekar að vera!

Þar er full ástæða til þess að taka ofan fyrir ákveðnu fólki hér á landi vegna tveggja atburða sem áttu sér stað í dag. Það má með sanni segja að almenningi, eða að minnsta kosti þessum hluta almennings, sé að fara fram þegar kemur að andpsyrnuaðgerðum gegn ríki og auðvaldi. Því ber að fagna.

Leðurfákar skipta sér af og krefjast hlýðni

Alþingismenn lokaðir úti

Aftaka sér mikla og góða ástæðu til þess að taka að ofan fyrir tveim ungum anarkistum á Hvolsvelli, sem gerðu heiðarlega tilraun til að eyðileggja auglýsingaskilti bensínfyrirtækisins N1 nú um helgina. Mogginn greindi frá þessu sæmdarverki en þó á ögn neiðkvæðari hátt en Aftaka gerir:

,,Lögreglan á Hvolsvelli stóð tvo skemmdarvargar að verki í bænum aðfaranótt laugardags. Við venjubundið eftirlit sáu lögreglumenn til skemmdarvarganna sem voru að eyðileggja skilti við bensínstöð N1. Þar sem skemmdarvargarnir voru báðir undir lögaldri var þeim ekið heim eftir stutta yfirheyrslu. Þeir mega búast við kæru og þess að vera krafðir um skaðabætur vegna skemmdanna sem þeir unnu.”

Aftaka tekur ofan fyrir gjörningi þjóðarflokksins en þau undu sér vel meðal svína í teboði í morgun áður en þau afhentu ráðamönnum bókina Animal Farm til að minna þá á hversu mikil svín þeir í raun séu. Látið var liggja á milli hluta hver örlög svína eru iðulega í okkar vestræna samfélagi….: grilluð með kartöflum á jólunum….. eða enda bara sem skítug pulsa með remólaði og öllu!!! HEHE!

jóla ríkisstjórn

Orkuveita Reykjavíkur otaði á dögunum “styrk” framan í Saving Iceland, sem var auðvitað náðarsamlegast afþakkaður.

Aftaka myndi furða sig á þessu fáránlega uppátæki ef við værum ekki vön að líta á styrki frá fyrirtækjum sem fjárfestingar en ekki góðverk. Hér á síðunni hefur áður verið fjallað um það hvernig fyrirtæki, stóreignamenn og aðrir fjársterkir kúkalabbar kaupa listamenn, lífstíl og hugmyndir til þess að bæta ímynd sína. Fljótt á litið verður varla annað séð en að orkuveitan hafi hér reynt að skapa sér umburðalynda og skilningsríka ímynd með yfirlýsingum um aðdáun á hugsjón og fólki sem endurtekið ræðst á hana í orðum og gjörðum. Aftaka mun halda sig við þessa fréttaskýringu uns annað kemur í ljós.

thorskur.jpgFiskimaðurinn Ásmundur Jóhannson í Sandgerði er byrjaður að róa án kvóta. Síðan 18. júní hefur hann landað nokkrum tonnum af fiski á nýju smáskipi. Þetta gerir hann til þess að mótmæla kvótakerfinu sívinsæla.

Þetta kemur fram í fréttatíma Rúv þann 12. júlí.

Síðan kvótakerfinu var komið á hefur atvinnulífið hörfað af landsbyggðinni, mannflótti fylgt í kjölfarið og auður safnast á ofur fáar hendur. Umhverfið hefur lítið grætt á þessu kerfi sem ýtir undir brottkast afla og togveiðar, kálar smábátaútgerð að miklu leyti og kvetur til þess að afli sé unninn erlendis.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Login