Hér sérðu bara færslur með tagginu tónlist:
Tögg:

Í tilefni heimsóknar fjöldamorðingjans Condoleezzu Rice til Íslands síðasta föstudag, mælir Aftaka með þessu lagi og myndbandi um ríkisstjórn Fröken Hrís og félaga.

XXX Rottweilerhundar hafa gefið út lagið og myndbandið Reykjavík Belfast og notast í þar við hljóð- og myndupptökur frá óeirðum síðustu viku við Rauðavatn. Viðlagið eru hin margfrægu og vinsælu orð “GAS! GAS! GAS!” sem ofbeldisfullir lögreglumenn öskruðu hvað eftir annað á sama tíma og þeir sprautuðu piparúða á mótmælendur.

Í fréttatíma stöðvar 2 í kvöld sagði Erpur Eyvindarson, einn meðlimur Rottweilerhunda, að lagið væri ádeila á harkalegar aðgerðir lögreglu gagnvart meðlimum Falun Gong og Saving Iceland síðustu árin. Nýliðnar aðgerðir gegn vörubílstjórum séu dropinn sem fyllti mælinn.

Tögg:

THE!Þýska raf-hlómsveitin THE! gaf nýverið út tónleikaplötu sem hægt er að hlaða niður í heild sinni hér. Það væri þó ekki frásögufærandi (fyrir utan hvað það er alltaf ánægjulegt þegar hljómsveitir bjóða upp á efni sitt frítt til niðurhals) ef ekki væri fyrir einstaklega skemmtilega staðsetningu tónleikanna sem um er að ræða.

Hljómsveitarmeðlimir voru á ferðalagi um Ísland síðasta sumar og tóku með sér græjurnar til vonar og vara ef þeir fengju tækifæri til að spila einhvers staðar.

Í viðtali við Fréttablaðið í dag talaði tónlistarmaðurinn Þórir eða My Summer As a Salvation Soldier um nýja plötu sína Activism.

Þórir

Titill plötunnar kemur til af umræðunni um pólítíska aktívista hér á landi og þá sérstaklega um Saving Iceland hreyfinguna, en Þórir segist taka neikvæða og niðrandi umræðu um Saving Iceland mjög nærri sér. Hann er mikill stuðningsmaður hreyfingarinnar og hefur bæði tekið þátt í aðgerðum hennar sem og hjálpað til við fjáröflun. Hann lýsir einnig yfir stuðningi við pólítíska aktívista alla jafna.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Login