Bloggheimar eru heitir sem eldur eftir mótmælin á Austurvelli í dag. Bálið er vissulega þægilegt enda gott að ylja sér við ánægjuraddir fólks vegna róttækra aðgerða gegn kapítalismanum. Það er þó líka sárt, því enn má sjá bloggvini ríkisins væla, segja eggjakastið vera vanvirðingu við Alþingishúsið og sömuleiðis Bónus-fánann.
Og auðvitað leynast svo þar inn á milli aðdáendur lögreglunnar sem væla og væla. ,,Hvers vegna að veitast að lögreglunni?” spyrja þeir og aðrir taka undir: ,,Heyr heyr!”
Laugardaginn síðastliðna, þann 25. Október, fór fram stærðarinnar aðgerð og mótmæli í Danmörku. Yfirskrift dagsins var Luk Lejren! eða Lokum Búðunum! og var tilgangurinn að mótmæla meðferð á hælisleitendum í Danmörku og loka búðunum (lesist: fangelsinu) sem þeir búa í. Búðirnar, sem eins og fangelsi eru girtar af með gaddavír, eru staddar í smábænum Sandholm, um 25 km. frá Kaupmannahöfn. Skilaboð þeirra sem stóðu að aðgerðinni voru skýr og í alþjóðlegu ákalli fyrir aðgerðina sagði m.a. þetta:
Stríðið gegn götulist heldur áfram í Reykjavík. Hingað til hafa litla fórnarlambið Ólafur F. Magnússon og kumpáni hans Jakob Frímann Magnússon kappkostað við að uppljóstra fasistaeðli sitt og borgarstjórnarmeirihlutans. En viti menn, nú hefur fjölgað í hópnum og Aftaka býður hann innilega velkominn í hóp valdníðinga; byggingarfulltrúann Magnús Sædal.
Puh! Hva, tvær valdníðslufærslur í sömu viku? Já góðir hálsar, það eru slík býsn af valdníðingum á ferðinni að Aftaka hefur varla undan að hnýta hengingarhnútana. Í þetta skipti er það vor allra náðugasti dóms- og kirkjumálaráðherra sem verður tekinn fyrir, þjóðarafmánin hann Bjössi litli Bjarnason.
Á vefsíðu sinni lýsir hann ævi sinni og starfsferli í þaula og má lesa milli línanna að hann þykist gamalt brýni og drengur góður.
Nóg er af níðslunni og þá fer Aftaka á kreik. Í þetta skiptið er það enginn sérstakur einstaklingur sem fær umfjöllun okkar heldur heilt embætti; lögreglan.
Lítið á þetta:
Strákur fer inn í búð, starfsmaður sakar hann um að stela og hringir á Bra-Bra í svörtu fötunum sem mætir á svæðið ásamt hvað… allavega fjórum samþrælum sínum. Bra-Bra hegðar sér í samræmi við valdasvið sitt og gerir krökkunum ljóst að það er HANN sem ræður. Svo fer eins og sést í myndbandinu; Bra-Bra lætur aumingja strákinn (sem er auðvitað saklaus af fyrrnefndum ásökunum) finna fyrir því.
Hér með hefst langtíma umfjöllunin Valdníðsla í verki - Hvað er að yfirvaldi? þar sem valdhafandi einstaklingar eða hópar verða teknir fyrir og hegðun þeirra og aðgerðir skoðaðar.
Og heiðurinn, að vera fyrsta umfjöllunar-dýrið, á góðvinur okkar allra, Friðrik Sophusson, forstjóri Illvirkjunar, en hér má sjá lítið viðtal við hann vegna fyrirhugaðra virkjanaframkvæmda í Þjórsá. Níu landeigendur við ána hafa nú afhent Friðriki bréf þar sem þau segjast ekki ætla að halda áfram frekari samningaviðræðum við Landsvirkjun; virkjunin muni ekki rísa.
XXX Rottweilerhundar hafa gefið út lagið og myndbandið Reykjavík Belfast og notast í þar við hljóð- og myndupptökur frá óeirðum síðustu viku við Rauðavatn. Viðlagið eru hin margfrægu og vinsælu orð “GAS! GAS! GAS!” sem ofbeldisfullir lögreglumenn öskruðu hvað eftir annað á sama tíma og þeir sprautuðu piparúða á mótmælendur.
Í fréttatíma stöðvar 2 í kvöld sagði Erpur Eyvindarson, einn meðlimur Rottweilerhunda, að lagið væri ádeila á harkalegar aðgerðir lögreglu gagnvart meðlimum Falun Gong og Saving Iceland síðustu árin. Nýliðnar aðgerðir gegn vörubílstjórum séu dropinn sem fyllti mælinn.
Fréttatillkynning frá umhverfishreyfingunni Saving Iceland
Mánudaginn 21. apríl 2008 kemur stofnandi Saving Iceland, Ólafur Pall Sigurðsson fyrir héraðsdóm Austurlands ákærður fyrir eignaspjöll. Ákæran er til komin vegna atburða í mótmælabúðunum við Snæfell í júlílok 2006.
Öll borgaraleg vitni segja að fjórhjóladrifsjeppa lögreglunnar hafi viljandi verið ekið á Ólaf Pál á hraða sem gat haft lífshættu í för með sér. Ökumaðurinn, Arinbjörn Snorrason, lögregluþjónn nr. 8716 og háttsettur við stjórn aðgerðanna við Kárahnjúka, reyndi einnig að aka yfir aðra mótmælendur við mörg önnur tækifæri þetta sumar sem og við Lindur (nú undir vatni en þar voru mótmælabúðir Saving Iceland) og við mótmælaaðgerðir á byggingarsvæði Desjarárstíflu.
Í fyrradag, 15.apr. gerði hópur sem kallar sig ‘enginn er ólöglegur’ eða á frummálinu ‘Ingen människa är illegal’ tilraun til að stöðva brottvísun hins 23 ára Jamil Mohammed Burhan frá Svíþjóð.