Fjölmiðlar eru stór þáttur í lífi flestra. Fréttablöð fljúga inn um bréfalúgur, sjónvarps- og tölvuskjáir lýsa upp heimili fólks og útvörp drepa þögnina. Aftaka fjallar hér um þetta fyrirbæri, fjölmiðla.
DV ögrar lögreglu og stjórnvöldum
Þó seint verði stuðningi við Dagblaðið Vísi lýst yfir hér á Aftöku er ekki annað hægt en að taka ofan fyrir umfjöllun blaðsins á vígbúnaði þræla ríkissins, lögreglunnar. Síðustu daga hefur blaðið sagt frá brynvörðum bifreiðum lögreglunnar og sérþjálfuðum óeirðahundum. Tími umfjöllunar DV á vel við nú þegar reiði fólks gagnvart stjórnvöldum virðist aukast með hverjum degi og samhliða aukast líkurnar á því að lögreglan sjái ástæðu til að nota vígbúnað sinn.
Hann Björn litli Bjarnason deyr ekki ráðalaus, hann býst við að finna unga menn með valdníðslu í hjartanu, eftir niðurlægingu skólakerfisins og yfirvaldsins, til að uppfylla pervisna valdníðsludrauma sína! Það hlakkar í Birni litla B. þegar hann hugsar um rafstuðsbyssur og táragas. Hann nuddar kylfuna og skvettir úr honum yfir riot-porni frá öðrum valdníðingsríkjum!
En Björn:
Það er enginn memm þér, þú færð ekki fleira fólk til að kúga fyrir þig og þína, við erum öll búin að sjá í gegnum ykkur!
Fyrir u.þ.b. viku síðan réðust 58 lögregluþrælar inn á gistiheimili hælisleitenda í Njarðvík, tóku peninga og vegabréf af fólki, og leituðu að eiturlyfjum, sem reyndar fundust ekki í þetta skiptið. Fréttaflutningur af málinu var með eindæmum ógeðslegur og sú mynd gefin af gistiheimilinu að þar sé hrúga eftirlýstra morðingja, eiturlyfjasala, óheiðarlegra einstaklinga með fölsuð vegabréf og svartamarkaðsverkamanna. Hlið við fréttir um lögregluaðgerðina voru settar fréttir um ,,hættulega Litháa” og fleira í þeim dúr. Tilgangurinn var svo augljós; að skapa hælisleitendum ranga ímynd. „Nú verður bent á okkur ef við förum í göngutúr um götur Keflavíkur,“ sagði Farzad Rahmanian einn hælisleitanda við Mbl.is.
Í fyrradag brutust 58 lögregluþrælar inn í dvalarstað hælisleytenda á Íslandi sem er staðsett í Njarðvík.
Þar eru nú 42 manneskjur sem bíða þess að mál þeirra verði afgreydd sem fyrst og krossleggja fingur í þeirri von að fá hér dvalarleyfi. Lögreglan lagði að eigin sögn hald á peninga að andvirði 1,6 miljón íslenskra króna auk pappíra sem þeir segja að fólkið hafi ekki framvísað til útlendingaeftirlitsins þegar þau sóttu um landvistarleyfi.
Snemma morguns þann þriðja Júlí sl. hlupu tveir menn inn á flugbraut Keflavíkurflugvallar og fyrir flugvél sem var við það að hefja flugtak. Innanborðs var Kenýabúinn Paul Ramses sem hafði sótt um pólítískt hæli hér á landi vegna hættu á því að vera drepinn í heimalandi sínu. Íslensk stjórnvöld og útlendingastofnun ákváðu að hundsa málið, gefa skít í mannslíf og senda Paul til Ítalíu - einungis vegna þess að þau höfðu tæknilega séð lagaleg réttindi til þess. Þrátt fyrir töfina vegna flugbrautahlauparanna tók flugvélin á endanum á loft og sendi Paul í hendur ítalskra stjórnvalda. Þar mátti hann dúsa tvo mánuði í fangabúðum; aðskilinn frá konu sinni, nýfæddu barni og umheiminum.
Aftaka var sein á ferð og skellti sér í bíó, á nýjustu myndina um leðurblökumanninn Batman - The Dark Knight. Kvikmyndagagnrýnandi Aftöku sótti myndina ólöglega á internetinu og bauð restinni í popp, sódavatn, súkkulaði, risastóran bíóskjá og ýtti svo á PLAY!
Formúlan er dæmigerð; kapítalistinn Batman verndar kapítalistavini sína frá ósvífnum glæpamönnum, þá sérstaklega Jókernum, sem samkvæmt helstu aðstandendum myndarinnar er enginn venjulegur glæpamaður… heldur Anarkisti! ÓSJITT!
Eflaust hafa flestir orðnir varir við ýmsa gagnrýni á Ólympíuleikana. Gagnrýnisraddirnar virðast vera ívið háværari og fengið meiri athygli en venjulega og má rekja það til staðsetningu leikanna að þessu sinni, Kína. Mannréttindasamtök, ýmsir pólitískir hópar og mikill fjöldi fólks hefur bent á hverslags stjórnkerfi og ríkistjórn er við völd í Kína, og hvernig hún hún brýtur á fólki og stuðlar að auknu misrétti meðal manna. Allt þetta hefur færst í aukarnar seinustu ár og bent hefur verið á tengsl þess við þá staðreynd að í Kína nútímans er við lýði hið kapítalíska stjórnkerfi frjálshyggjunnar.
,,Eftir sem áður er nafnleysi ekki liðið. Ég áskil mér allan rétt til að fjarlægja óviðeigandi komment. Lokað er án hiks á þá aðila sem fara yfir mörkin hér í kommentum […] Athugasemdir birtast eftir að ég staðfesti þær.”
- Stefán Friðrik Stefánsson, atvinnu-bloggari
Aumingja Árni litli Johnsen… Agnes Bragadóttir kallaði hann stórslys og glæpamann í útvarpsþætti sínum og nú ætlar söng-lundinn spikfeiti að stefna henni fyrir dómsstólum og krefst 5 milljón króna skaðabóta. Samkvæmt lögmanni Árna má víst ekki kalla aumingjann litla glæpamann eftir að hann fékk uppreisn æru frá forset… nei úbbs, það gerðist víst þegar forsetinn var í fríi. En hvað um það? Aftaka hefur ekki mikið um málið að segja annað en þetta: