English 
Hér sérðu bara færslur með tagginu yfirvöld:

killllll

Nýlega birti Morgunblaðið með stolti frétt um að íslenska fyrirtækið Arctic Trukcs hafi tekist að selja 130 sérútbúin morðtól til norska hersins, sem notar tólin meðal annars í hernaði sínum í Afganistan, þar sem fólki er slátrað af sömu ásæðu og tölvuleikir eru spilaðir: Til afþreyingar. (Sríðið í Afganistan á sér jú einnig dýpri ástæður; valda- og auðlindagræðgi peningamaskínunnar sem stefnir peðum sínum fram til árása í nafni friðar og fána.)

Á meðan háðir fjölmiðlar æsa sig yfir fréttum af úrslitum útlits- og framakeppni í Moskvu, er maður nær dauða en lífi á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Eftir 19 daga hungurverkall til að mótmæla aðgerðaleysi íslenskra yfirvalda hvað varðar málefni hælisleitenda varð Mansri Hinchem fyrir hjartatruflunum. Á spítalanum var honum gefið saltvatn í æð en staðfesta hans í baráttu sinni er mikil; hungurverkfallið varir enn.

Tögg:

Við Þjóðleikhúsið

Mótmælaaðgerðirnar sem átt hafa sér stað síðustu daga eru eflaust besta birtingarmynd samskipta yfirvalda og almennings í þessu samfélagi flókinna valdastrúktúra sem við búum í. Með aðgerðunum hefur sá hafsjór sem venjulega ríkir á milli þessara tveggja hópa skyndilega orðið að litlum polli sem flestir eiga auðvellt með að hoppa yfir.

Aftaka er knúin af WordPress.
RSS: Færslur/Viðbrögð
Log in