Aftaka birtist á vefnum þann 27. janúar 2008, hálfu ári fyrir kreppu. Aftaka er og verður aldrei nein helvítis kreppusíða! Frá því í desember höfum við svo haldið úti enskri deild Aftöku, sem mun koma til með að vaxa, dafna og verða sýnilegri með tímanum.
Tilgangur Aftöku hefur frá upphafi verið að greina og gagnrýna samfélagið og hegðun bæði almennings og yfirvalda innan þess, út frá hugmyndum anarkista. Einnig að flytja fréttir af beinum aðgerðum gegn yfirvöldum og kapítalisma, sérstaklega þær sem háðir ríkis- og fyrirtækjafjölmiðlar segja ekki frá. Umfram allt að boða anarkíska byltingu. Þessi tilgangur stendur enn.
Það gera þeir sem koma að síðunni út frá sínum eigin forsendum og undir því nafni eða nafnleysi sem þeir kjósa sér. Hér skipta hugmyndir og gjörðir máli – ekki nöfn og andlit. Þeir sem koma að Aftöku eru ekki að undirbúa framtíðarframapot í þjóðfélaginu eða safna efni á ferilskrá sína. Þar af leiðandi skafa þeir ekki af skoðunum sínum heldur láta allt flakka. Það heitir að vera heiðarlegur samkvæmur sjálfum sér. Ókurteisi líðst svo sannarlega hér á bæ.
Ekkert efni síðunnar er háð þvingunum eignaréttarins. Nýtist efni síðunnar einhverjum í samræmi við ofangreindan tilgang hennar, er það frábært.
Peningar koma ekki nálægt Aftöku. Peningar eru vopn kúgara, beitt gegn þeim sem undir eru í samfélaginu. Útrýming peninga er göfugt markmið en tilvist þeirra mun þó ekki koma í veg fyrir nokkurn skapaðan hlut á Aftöku. Hér verða aldrei auglýsingar!
Frá upphafi Aftöku hefur fólki boðist að tjá sig um efni síðunnar með því að skrifa svör sem svo birtast fyrir neðan greinina. Þetta hefur gengið misvel. Margar skemmtilegar rökræður hafa skapast en á sama tíma hefur svarakerfið einnig leitt til óspennandi skítkasts. Við hvetjum þá sem uppskáru blóðugustu sárin á fingurgóma sína til að lesa nú efni síðunnar. Ef við þurfum að berjast gerum við það á götum úti.
Aftaka
aftaka[at]riseup[púnktur]net
Manifesto!